Brúðkaupsgestir

Það er ýmislegt sem gestir þurfa að huga að þegar þeir mæta til brúðkaups. Það er ekki nóg að mæta á staðinn, gráta nokkrum tárum og skemmta sér fram eftir kvöldi. Að sjálfsögðu á maður að skemmta sér á góðri stundu en gestir hafa líka vissa ábyrgð á herðum sér. Hér koma nokkrir punktar sem koma sér vel fyrir þá sem vilja vera fullkomnir gestir og þ.a.l. létta undir brúðhjónunum og fjölskyldum þeirra.

Svörun boðskorta
Þegar þú færð boðskort sent til þín (iðulega 6-8 vikum fyrir brúðkaupið) geymdu það á öruggum stað, ekki týna því í draslinu á skrifborðinu. Byrjaðu á að athuga dagsetninguna og athugaðu hvort þú sjáir þér fært að mæta. Það er mikilvægt að þú látir aðstandendur eða brúðhjónin vita sem allra fyrst hvort þú komist, það er jafn mikilvægt að láta vita ef þú kemur ekki. Brúðhjónin þurfa að láta veisluþjónustuna vita loka tölu á hversu margir gestir munu koma um tveimur vikum fyrir stóra daginn. Það er óþarfi að auka á áhyggjur þeirra. Iðulega eru nöfn, símanúmer og jafnvel netföng gefin upp á boðskortinu, hafðu samband við einhvern af þessum aðilum.

Hvað má og hvað ekki
Ef að einhverjum ástæðum þú sérð ekki fram á að geta mætt á síðustu stundu þá láttu vita, ekki bara sleppa því að mæta. Það væri hugulsamt, við þessar aðstæður, að senda brúðhjónunum brúðargjöf eða heillaóskir.

Ekki gera ráð fyrir því að þú geti mætt með vin/vinkonu þér við hlið, ekki nema að á boðskortinu standi „gestur" við hlið nafn þíns. Það sama segir um börn eða aðra fjölskyldumeðlimi ef nöfn þeirra eru ekki áletruð á boðskortið. Þú mátt ekki heldur móðgast þó kærasta/kærustu þinni sé ekki boðið með þér. Þegar öllu er á botninn hvolft þá eru það brúðhjónin sem ákveða hverjum þau vilja bjóða til brúðkaupsins. Það er ekki á þínu valdi að spyrja þau hvort þú megir koma með gest, það er ekki við hæfi.

Að senda heillaóskir
Ef þér er ekki boðið en brúðhjónin vilja að þú vitir af giftingunni þá ekki verða móðgaðu/uð. Ef til vill ætla þau einungis að bjóða þeim allra nánustu og því ekki getað boðið öllum vinahópnum. Það er góður siður hér á landi að senda brúðhjónum heillaóskir (símskeyti) en það er alls ekki skilda þín að gera það. Ef um er að ræða nokkuð nána vini/ættingja getur þú jafnvel sent þeim gjöf, það er þó ekki heldur skilda þín.

Gjafakaupin
Þegar þú hefur ákveðið að fara í brúðkaupið þarf að huga að gjöfinni. Þegar þú lætur vita um mætingu þín í brúðkaupið þá endilega spurðu í leiðinni hvar brúðhjónin eru með gjafalista og hvort það sé eitthvað sérstakt sem þau vilja. Foreldrar brúðhjónanna, systkini og nánustu vinir ættu að vita þetta. Ekki væntast þess að þessar upplýsingar komi fram á boðskortinu, það er eðlilegt að þú þurfir að spyrjast fyrir. Að sjálfsögðu ertu ekki tilneydd/ur að gefa gjöf af gjafalistanum.

Í hverju á ég að vera?
Aðal reglan er sú að klæðast eins og þú myndir vera til fara fyrir hverja aðra veislu á þessum tíma. Við hér á Íslandi höfum nokkuð stutt sumar og því tilvalið að nýta sumarkjólana og ljósu jakkafötin fyrir veisluna sem haldin er yfir sumartímann. Það er ekki við hæfi að fara í örþunnum, efnislitlum sumarkjól í vetrarbrúðkaup. Ef boðið er til kvöldveislu þá má ætla að hún sé formlegri en ef um hádegisverð eða kaffiveislu væri að ræða. Konur ættu að klæðast síðu frekar en stuttum pilsum eða kjólum og herrar í jakkaföt, skyrtu og bindi. Ekki klæðast of áberandi t.d. palíettu galakjól eða í gegnsæju. Fyrr á tímum þótti það ekki við hæfi að klæðast svörtu í brúðkaupi. Í dag er svarti liturinn tilvalinn fyrir kvöldskemmtun, alveg eins og hann er klassískur fyrir árshátíðina eða óperuna. Konur, ekki klæðast hvítum alfatnaði, það er ekki rétt að taka athyglina frá brúðinni á hennar degi, með því að klæðast litnum hennar (ef hún er í hvítum/ljósum kjól). Það er nóg til af öðrum litum sem hægt er að klæðast.

Athöfnin
Mættu stundvíslega til kirkju, þetta er ekki einn af þeim atburðum þar sem það er við hæfi að koma á slaginu eða nokkrum mínútum of seint. Það þarf að huga að því að finna bílastæði, fara á salernið, koma yfirhöfnum fyrir í fatahengi og koma sér fyrir í sæti með sálmabók og/eða dagskrá í hendi. Við komu er það algengur íslenskur siður að mæður brúðhjónanna taki á móti gestum í kirkjuandyrinu. Brúðguminn og svaramaður hans standa upp þegar nýr gestur gengur inn kirkjugólfið. Það er almenn kurteisi að heilsa þeim með því t.d. að kinka kolli. Þó svo að það sé gamall siður að konur sitji vinstri megin í kirkjunni og karlar hægra megin þá er alltaf vissara að spyrja t.d. mæðurnar hvernig setu gestanna er háttað. Sum brúðhjón vilja frjálst sætaval fyrir gesti sína en það mikilvægasta er að fara eftir óskum þeirra en ekki þinni eigin. Ef þú að einhverjum ástæðum kemur eftir að athöfnin hefur hafist, þá komdu þér hljóðlega fyrir aftast. Ef brúðurin er enn að ganga inn kirkjugólfið bíddu með að koma inn þar til hún er komin að altarinu og er sest niður. Ef þú ert annarra trúar en þeirri sem athöfnin fer fram við þá er það kurteisi að fylgja hópnum, t.d. þegar staðið er upp. Þegar brúðhjónin ganga saman út þá fylgja nánustu ættingjar, af fremstu bekkjunum, á eftir og svo hver sætaröð á eftir annarri. Sem sagt þeir sem sitja fremstir ganga fyrstir út og síðan þeir sem aftar sitja. Ekki troða þér inní röðina ef það er ekki komið að þinni sætaröð.

Það kemur ekki til greina að sleppa því að mæta í athöfnina og koma svo beint í veisluna, ekki nema ástæða liggi fyrir.

Veislan
Veisluhöld geta verið jafn misjöfn eins og veislurnar eru margar. Nokkuð algengt er þó að allir veislugestirnir taki á móti brúðhjónunum og skáli fyrir þeim áður en gengið er til sætis eða veitingar eru boðnar. Áður en að þessu kemur þá er ágætt að ganga um og heilsa uppá hina gestina, kynna þig og útskýra tengsl þín við brúðhjónin. Athugaðu hvort það sé fyrirfram ákveðið hvar gestirnir sitja og athugaðu þá hvar þitt borð er staðsett. Það er ekki sjálfgefið að þú fáir að setjast þar sem þér hentar.

Það er nokkuð misjafnt hvenær ræðuhöld byrja. Sumir veislustjórar vilja að skemmtiatriði og ræðuhöld séu á milli rétta eða á eftir matnum, á meðan aðrir láta dagskrána ganga allt kvöldið (daginn). Það er almenn kurteisi að klappa vel á eftir hverjum ræðumanni og skemmtiatriði. Ef þú ætlar að halda ræðu eða segja nokkur orð við brúðhjónin þá borgar það sig að hafa niður skrifaða þá punkta sem þú ætlar að fjalla um. Ekki drekka í þig kjark. Vertu á varðbergi fyrir því hversu mikið áfengi þú drekkur (ef þú ert að drekka) því það er auðvelt að drekka „aðeins of mikið" þegar setið er til borðs til langs tíma. Þetta er auðveldara þegar um standandi veislu er að ræða en þó alltaf vert að huga að þessu. Þú vilt ekki lítilæta þig, brúðhjónin né hina gestina einungis vegna þess að þú fékkst þér einu glasi og mikið.

Iðulega eru það brúðhjónin sem dansa fyrsta dansinn. Þar á eftir fylgja foreldrar og allir hinir gestirnir. Það er alltaf gaman að sjá fólk á dansgólfinu og því ekki hika við að skella þér á gólfið og taka snúninginn. Brúðhjónunum þætti alveg örugglega gaman að sjá einhvern gestanna hefja Kónga (Allir dansa Kónga……) og leiða alla gestina um salinn.

Ræðum aðeins um siði og venjur sem tíðkast í brúðkaupum á Íslandi. Ef til vill finnst þér hallærislegt þegar brúðguminn togar sokkabandið af fæti brúðarinnar (með tönnunum) og hendir í átt að hópi villtra ógiftra karla. Haltu skoðun þinni út af fyrir þig því þetta er stund brúðhjónanna og ákveðin stemmning fyrir þau að framkvæma þennan gamla sið. Það sama gildir um þegar brúðurin kastar brúðarvendinum til ógiftra kvenna og alla þá leiki sem í brúðkaupinu eru.

Hvenær er tími til að fara?
Það er allur gangur á hversu lengi veislan getur staðið yfir, það getur verið frá þremur klukkustundum uppí 7 klukkustundir. Það mun ekki fara fram hjá þér þegar síga fer á seinni helming veislunnar. Ef þú mögulega getur þá ekki yfirgefa samkvæmið fyrr en búið er að skera kökuna. Þú þarf ekki að bíða þar til brúðhjónin yfirgefa veisluna, nú til dags skemmta þau sér oft með gestunum fram eftir. Þegar þú hefur ákveðið að yfirgefa veisluna þá leitaðu af brúðhjónunum eða einhvern nákomin þeim og þakkaðu fyrir þig.

Sko, það er ekkert svo erfitt að vera hinn fullkomni gestur. Mest allan tímann getur þú setið róleg/ur og slappað af á meðan þú nýtur veitinga og samveru annarra. Jafnvel þótt þú njótir þess ekki þá mundu að þetta er dagur brúðhjónanna.

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi: