Gæs og steggur

Eitt af því sem fylgir brúðkaupsundirbúningi er gæsapartý og steggjapartý. Margir hverjir halda þessi partý helgina fyrir brúðkaupið. Það er þó ekkert að því að hafa þau aðeins fyrr, það kemur gæsinni/steggnum meira á óvart og um leið þá veldur það ekki eins mikilli streytu þar sem lengri tími er í stóradaginn (hver vill eyða heilum degi í þynnku/þreytu ef brúðkaupið er eftir 6 daga!).
Til eru margar sögur um heppileg og skemmtileg party sem vinahópurinn hefur skipulagt fyrir verðandi eiginkonu/mann. Einnig heyrast sögur þar sem farið hefur verið yfir strikið í ærslaganginum og afleiðingarnar dregið dilk á eftir sér. Fyrir ykkur sem eruð að undirbúa veislu fyrir vin/vinkonu þá byrjið á að hugsa um öryggi og skemmtanagildi þess sem þið gerið. Munið að þegar gæsin/steggurinn rifjar þennan dag upp í framtíðinni þá vill hún/hann gera það með bros á vör en ekki með hryllingi. Hugmyndirnar eru óteljandi, það þarf bara að hugsa vel.
Eitt af lykilatriðunum er að velja hrell eða skemmtiatriði sem hæfa vini/vinkonu ykkar. Það er ekkert gaman fyrir lofthræddan einstakling að fara uppí Hallgrímskirkjuturn með bjór í hendi og veifa niður til vina sinna. Það gæti endað með ósköpum. Það er þó ekkert að því að hrella smávegis bara á réttan og viðeigandi máta. Hér að neðan getið þið fengið hugmyndir af gæsa/steggja partýum. Bætt verður við listann um leið og nýjar hugmyndir fæðast.
Ekki vera þó feimin við að leggja kollinn í bleyti og gera eitthvað sem vinum ykkar finnst gaman og munu þakka ykkur fyrir.
Undanfarin ár hefur það færst í aukana hér á landi að senda gæsir og steggi í hljóðver þar sem þau spreyta sig á lögum sem hópurinn hefur valið fyrir...
Meira