Gæs

Það er tilvalið að blanda saman hugmyndum, það fer allt eftir því hversu langan tíma þið hafið.
- Eitt af því vinsælasta er að fara með gæsina í dekur á snyrtistofu. Staðir eins og Mekka spa, Baðhúsið og Planet puls eru vinsælir fyrir það að þegar gæsin hefur fengið sitt dekur (t.d. andlitsbað, handasnyrting eða nudd) þá gefst öllum vinkonuhópnum tækifæri á að vera saman í heita pottinum. Þar er hægt að tala saman, segja sögur og brandar og skála við tilvonandi brúður. Þar er góð aðstaða til að punta sig og gera sig fína fyrir viðburðarríka kvöldstund með vinkvennum sínum.
- Til að hafa einhvern hrell er tilvalið að láta einhvern óþekktan mann ná í gæsina og t.d. fara með hana í sund, göngutúr í heiðmörk, hestbak, mótorhjólaferð, að versla, gefa öndunum, kenna sér (maga-)dans o.m.fl. hugmyndirnar eru óteljandi.
- Það er sniðugt að nýta áhugamál gæsarinnar á einhvern hátt. Ef hún er t.d. „erobic freek" þá væri hægt að láta hana kenna leikfimistíma í einhverri af líkamsræktastöðvum bæjarins.
- Ef þið farið allar saman út að borða væri hugmynd að gæsin fengi eingöngu brauð með osti og dökkan bjór allt kvöldið á meðan þið borðið ljúffenga máltíð með góðu víni (eða bara gosi).
- Kringlan og Smáralindin hafa verið vinsælir staðir til að láta gæs valsa um uppáklædd fígúrufötum (80.tískan er æði, veiðiföt þar sem hún er á steggjaveiðum o.m.fl). Gæsin gæti jafnvel spurt vegfarenda um það hvaða álið þeir hafa á hjónabandi.
- Sjóstangaveiði í pollagalla og stígvélum er góð útivera. Ef til vill gefst möguleiki á að fá eldaðan þann fisk sem veiddur er í ferðinni þannig að hópurinn heldur sig saman.
- Að gefa gæsinni nauðsynlega hluti fyrir hjónabandið er ekki vitlaus hugmynd. Þetta þarf alls ekki að kosta mikið. Kaupið hluti eins og t.d. gúmmíhanska (svo hún geti þrifið klósettið vel), Playgirl, (þá verður hún aldrei einmanna), hið sí vinsæla egg (stundum þá eru mennirnir ekki að standa sig), blúndu G-streng (svo hún geti ALLTAF tælt karlinn sinn) handjárn (ja…, hún ræður hvað hún gerir við það) o.s.frv. Þessar litlu gjafir gefið þið henni af og til yfir allt kvöldið, getið jafnvel látið litla málshætti eða sögu fylgja hverjum og einum. Þetta uppátæki á eftir að veita mikla kátínu í hópnum.
- Það er alltaf til sá möguleiki að fara í stelpuferð uppí sumarbústað, grilla góðan mat, spila og spjalla. Góð stund í góðra vina hópi er gulls ígildi.
- Keila, litabolti, go-kart, fallhlífarstökk, flugferð, kaiakferð, riverrafting eru einnig hugmyndir sem eru vel framkvæmanlegar. Þær kosta mis mikið en geta verið mjög eftirminnilegar.
- Bláa lónið klikkar ekki og kvöldverður á veitingahúsi Blá lónsins er skemmtileg upplifun. Einnig er hægt að fara í létta "spa" meðferð (nudd og maska), það gerist ekki betra.
- Karíókí er alltaf vinsælt. Það hafa allir gaman af því að syngja í góðra vina hópi.