Steggur

Það er tilvalið að blanda saman hugmyndum, það fer allt eftir því hversu langan tíma þið hafið.
- Hvernig er nú best að mæla karlmennsku steggs? Ein leið er fallhlífarstökk. Huga verður þó að því þegar verið er að senda stegg í einhverskonar „adrenalín skop" að fara verður varlega með áfengi.
- Ef þið hafið tækifæri á að fá litla rellu með flugmanni að láni þá eigið þið auðvelt með að hrella stegginn. Setjið stegginn á línuskauta, bindið reipi við relluna og réttið honum. Hann heldur að rellan muni draga sig um flugvöllinn og að hann eigi að sleppa þegar hún tekur á loft en sannleikurinn er annar. Þið vefjið hans reipi í bland við annað reipi sem ekki er fast við relluna. Að lokum fer vélin af stað en hann situr einn eftir skít hræddur á flugbrautinni.
- Af hverju ekki að skella sér í köfun! Látið unga yngismæ ná í stegginn og keyra hann í köfunarkennslu, hún gæti jafnvel verið aðstoðarkona hans í kennslunni (oft fara þessar kennslur fram í sundlaugum en e.t.v. líka í vötnum).
- Strákarnir saman á vatnasleða/sæsleða/sjóskíði, hvað er skemmtilegra.
- Litbolti, keila og go-kart er skemmtileg afþreying sem allur hópurinn getur tekið þátt saman í. Sundferð í Nauthálsvíkina eða aðra sundlaug er gott framhald. Matur og drykkur tekur svo við á einhverjum af þeim fjöl mörgu veitingahúsum landsins, eða bara gott grill í heimahúsi.
- Það er svo gaman með litboltann í Fossvoginum að þar er til sér kanínubúningur sem ætlaður er stegg eða gæs. Steggurinn/gæsin klæðir sig upp í búninginn og leikurinn mun ganga út á það að vinir hans/hennar eiga að "veiða" kanínuna.
- Sjóstangaferð með strákunum, hvað er betra. Vöðlur og reggstakkur, heitt kaffi á brúsa með hjartastyrkjandi vökva útí og sjóstöng. Ef til vill gefst möguleiki á að fá eldaðan þann fisk sem veiddur er í ferðinni þannig að hópurinn heldur sig saman fram eftir degi/kvöldi.
- Bláa lónið stendur alltaf fyrir sínu. Kvöldverður á veitingahúsi Blá lónsins klikkar ekki.
- Jeppaferð uppá jökul eða hvert sem er er skemmtilegt og eftirminnileg reynsla.
- Ef hópurinn fer saman út að borða þá er hugmynd að leyfa stegginum einungis að borða pylsu með öllu og drekka dökkan bjór allt kvöldið á meðan þið strákarnir snæðið dýrindis mat.
- Karíókí er alltaf vinsælt. Það hafa allir gaman af því að syngja í góðra vina hópi.