Hugmyndalisti

Hugmyndalisti fyrir veislustjóra:

Veislustjóri/stjórar er tengiliður milli brúðhjóna og gesta. Það er misjafnt hvort um er að ræða einn eða tvo veislustjóra í brúðkaupsveislu. Sumir telja að einn aðili frá hvorri fjölskyldu (einn frá brúður og einn frá brúðguma) eigi að sjá um hlutverk veislustjóra. Það þarf að vera gott samband á milli þessara aðila og því mikilvægt að veislustjóri sé léttur í lund og eigi auðvelt með að koma fyrir sig orði. Það er alltaf eitthvað óvænt sem upp getur komið og þá hleypur veislustjórinn til en ekki brúðhjónin. Fyrsta skrefið er að veislustjóri hafi gestalistann í sínum höndum. Gott er ef hann getur haft samband við vini og skyldmenni brúðhjónanna til að safna saman upplýsingum um þau (frá t.d. æskuárum, prakkarastrik, myndir, sögur o.fl). Veislustjóri býður gesti velkomna með stuttri upphafsræðu. Hann stýrir veislunni, raðar skemmtiatriðunum og ræðum inn á milli rétta og sér til þess að veislan gangi snuðrulaust fyrir sig og að ekki myndist of mikið af eyðum eða að veislan dragist á langinn eftir að búið er að borða. Hér að neðan er hægt að líta á nokkra punkta er gætu komið sér vel fyrir verðandi veislustjóra. Einnig eru hugmyndir af leikjum og öðrum skemmtiatriðum.

  • Veislustjórar þurfa að vera vel undirbúnir og með veisluna vel skipulagða, bæði niðurskrifaða punkta og góða upplýsingaöflun.
  • Það er ágætis regla að veislustjóri líti við í salinn (ef veisla er haldin í sal) áður en veislan hefst. Hann þarf að vita hvernig t.d. hljóðkerfið virkar, hljómflutningstækin og fl.
  • Ræðið við veisluþjónustuna, fáið greinagóða lýsingu á þeim veitingum sem boðið er uppá í veislunni.
  • Ef boðið er uppá vín þá verið vel að ykkur hvers konar vín verið er að bjóða uppá (þjóðerni/vínþrúga/aldur/krydd/geymsla o.fl).
  • Það er alltaf gaman að hafa skýrar lýsingar á gómsætum mat eða víni. Ekki vera feimin við að nota skrautleg lýsingarorð þegar þið kynnið matseðilinn/vínlistann. Það hljómar fallega í eyrum og vekur hungur hjá gestunum (t.d. Ferskar humargljáðar tígrisrækjur með villtum kryddjurta keimi og ítalskri hvítvínssósu).
  • Ef brúðhjónin setja upp vefsíðu (t.d. inná Brúðkaup.is) þá er tilvalið að mynnast á það að þeir sem vilja segja nokkur orð við brúðhjónin eða koma með annarskonar skemmtiatriði, skulu hafa samband beint við veislustjóra. Með þessu móti eru meiri líkur á að skemmtiatriði og ræðuhöld verði meira undirbúin og skipulögð.
  • Veislustjóri sér iðulega um þann gamla sið að brúður hendi brúðavendi sínum til hóp ógiftra kvenna. Það sama segir með brúðgumann með að henda sokkabandinu til ógiftra karlmanna.
  • Verið viss um að gestabók og fallegur penni sé staðsett á réttum stað áður en gestirnir byrja að koma.

Nokkrar hugmyndir af leikjum: ATH fleiri leiki má finna hér á vefnum undir "Veislan og sprell" og þar undir "Leikir".

  • Leikurinn með Barbie og Ken er alltaf vinsæll (Hve vel þekkir þú maka þinn). Nánari lýsing á "Leikjarsíðunni".
  • Næluleikur: Gestir látnir hafa nælu þegar komið er inn í veislu, sem þeir verða að festa á sig. Veislustjóri skýrir strax í byrjun veislu frá leiknum sem látinn er ganga alla veisluna, en fundin eru nokkur bannorð t.d. brúðarkjóll, nafn brúðguma, osfrv. einnig að bannað sé að krossleggja fætur, en ef einhver gerir/segir bannorðin þá má sá sem heyrði það taka næluna af viðkomandi og næla á sig. Gengur semsagt útá að safna sem flestum nælum í gegnum alla veisluna þegar fólk er að spjalla saman og sigurvegari fær svo jafnvel einhver verðlaun. Skemmtilegur leikur sem leyfir þátttöku gesta í veislunni og eða brýtur aðeins ísinn.

 

  • Skrifið fallega sögu um ást og hjónaband. Skiljið eftir eyður fyrir öll lýsingaorð og sparið ekki fjölda þeirra í sögunni. Látið pappírsörk ganga um salinn þar sem gestir eru beðnir um að skrifa niður lýsingaorð. Þegar hver gestur er búinn að skrifa sitt lýsingaorð þá brýtur hann blaðið á þann veg að næsti maður sér ekki það orð sem hann skrifaði. Þegar allir hafa skrifað orð þá fyllið þið orðin inní söguna og út kemur skemmtileg blanda sem lesin er upp fyrir gestina.

 

  • Vinsæll leikur er „slá í glasið". Hann virkar þannig að í hvert skipti sem einhver gestanna slær í glasið sitt þá taka hinir gestirnir undir og brúðhjónin eiga að standa uppá stól og kyssast. Það þarf að passa að þetta sé ekki gert of oft því þá hættir þetta að vera gaman. Einnig er hægt að nota þá aðferð að stappa fótunum niður.

 

  • Að syngja saman er alltaf gaman. Til að gera þetta enn skemmtilegra er möguleiki á að skrifa texta af hressu lagi á blað sem fest er undir alla stólana í salnum. Gestirnir þurfa svo sjálfir að sækja blaðið þegar veislustjórinn segir til. Byrjað er að syngja lagið rólega og smátt og smátt er hraðinn aukinn og í lokinn eru allir í kapp við hraðann og oft á tíðum endar þetta í hlátrasköllum (veljið lag sem all flestir þekkja og er ekki langt t.d. „Vertu til er vorið kallar á þig").

 

  • Það er sniðugt að bjóða gestunum að skrifa heilræði til brúðhjónanna. Það er hægt að útfæra þetta á misjafnan veg. Einn möguleikinn er að gestirnir skrifi eina setningu fyrir brúður og eina fyrir brúðgumann. Miðunum er svo safnað saman í sitthvora skálina og brúðurin les upp heilræðin fyrir fyrir brúðgumann og öfugt. Einnig er líka hægt að láta gestina skrifa þau heilræði sem þau vilja til brúðhjónanna (t.d. á hjartalagaðan miða) og þessum miðum er komið fyrir á t.d. fallegri grein eða pottaplöntu (viskutréið). Þessi heilræði lesa brúðhjónin seinna í einrúmi.

 

  • Það er alltaf góð hugmynd að brjóta upp formlegheitin með dansi. Hópdansar eins og Macarena, fugladansinn eða Kónga eru alltaf vinsælir og flestir þekkja. Hringdansinn þar sem konur eru fyrir innan og karlar fyrir utan og snúa að hvort öðru vekur alltaf kátínu. Þá dansa kynin í sitthvora áttina og þegar tónlistin stöðvast þá dansa pörin saman, sem enda á móti hvort öðru, við næsta lag.
Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi: