Heimasnyrting

Já,stóri dagurinn nálgast óðfluga. Allar viljum við líta sem allra best út á hamingjusamasta degi lífs okkar. Við vitum líka að það kostar að viðhalda fegurð okkar og ef við viljum fara reglulega í andlitsbað eða setja djúpnæringu í hárið þá sjáum við fram á háan "snyrtireikning". Örvæntið ekki, það er til önnur áhrifamikil leið, önnur leið en sú að þurfa að draga upp veskið og bæta við sig nokkrum augnhrukkum þegar "snyrtireikningurinn" birtist. Hvað er betra en að slappa af heima með náttúrulegum og heimagerðum kremum og olíum.
Munið að áður en við konur fóru að kaupa snyrtivörur þá bjuggum við þær til.
Húðin
Andlitshreinsir:
- ½ bolli hreint júgúrt
- 1 matskeið sólblómaolía
- 1½ teskeið ferskur sítrónusafi
Blandið öllu hráefninu saman og hellið í ílát sem hægt er að loka vel og geymið í kæli. Notið 1 teskeið að morgni sem og kvöld til að hreinsa andlitið með. Hentar vel fyrir allar húðtegundir.
Mildur andlitskornamaski: (hreinsimaski)
- 2 matskeið haframjöl
- 2 matskeið maísmjöl
- 2 matskeið hveitiklíð (hveitikorn)
Blandið öllu hráefni saman og geymið í vel lokuðu íláti. Með því að blanda örlitlu af volgu vatni við eina teskeið af blöndunni myndast krem sem gott er að nota einu sinni til tvisvar í viku til að hreinsa andlitið með. Hentar vel fyrir venjulega og viðkvæma húð.
Sterkur andlitskornamaski: (hreinsimaski)
- 1 teskeið sykur
- safi úr ½ sítónu
Þegar andlitið er þvegið með hefðbundni andlitssápu/kremi bætið sykrinum við og nuddið mjúklega. Skvettið svo sítrónusafanum yfir andlitið og hreinsið í lokin með köldu vatni. Gerið þetta allavega einu sinni í viku. Hentar vel fyrir þurra húð.
Andlitsvatn fyrir venjulega húð:
- ¼ teskeið bórax púður (bósúrt natríum, notað m.a. við sótthreinsun)
- 3 matskeið soðið vatn
- 3 matskeið rósavatn
- 1 matskeið vodka
Leysið bórax púðrið upp í soðna vatninu og hrærið vel. Bætið við rósarvatninu og vodkanu. Setjið í flösku sem lokast vel svo að alkahólið gufi ekki upp. Eftir að andlitið hefur verið hreinsað hellið andlitsvatninu í bómul og strjúkið yfir andlitið.
Andlitsvatn fyrir feita húð:
- Nokkrir dropar af tea tree olíu (fæst í Body shop t.d.)
- ¼ bolli soðið vatn.
Blandið saman olíunni og vatninu og hellið í vel lokaða flösku. Hristið vel fyrir notkun. Vætið bómul með blöndunni og berið á vandræðasvæði á hreinni húðinni. Tea tree olían er dauðhreinsandi efni og er þar af leiðandi þurrkandi. Notist eftir hefðbunda andlitshreinsun. Blanda þessi er mjög góð fyrir bólótta húð.
Athugið, þegar ný snyrtivara er tekin til notkunar þarf ávallt að huga að því að efni í vörunni geta verið ofnæmisvaldandi fyrir húðina. Því er best að fara varleg og gefa sér góðan tíma í að prufa nýungar. Ekki setja maska á ykkur, sem þið hafið aldrei prufað áður, nokkrum dögum fyrir stóra daginn, þið vitið aldrei hvernig húðin bregst við.