Hvenær munt þú gifta þig?

Nú er júlímánuður að ganga í garð, en mörg pör velja einmitt hásumarið fyrir þá stóru stund að láta gefa sig saman í hjónaband. Júlíbrúðurin er líka álitin fögur og hugguleg í sér, -en líka ögn örgeðja! 

Brudkaup.is komst nýlega yfir gamla blaðaúrklippu, með grein sem segir frá fornum spádómum sem greina persónuleika brúðar út frá mánuðinum sem þær gifta sig í. Því miður var ekki unnt að greina hvaðan heimildir voru fengnar. Þær fullyrðingar sem hér eru settar fram byggja þó að öllum líkindum ekki á hávísindalegum rannsóknum, en þetta er skemmtilegt svo við látum það flakka.

 Tilvonandi brúðir eru beðnar um að taka þetta ekki of nærri sér, í það minnsta vonum við að sem flest pör haldi sig áfram við fyrirhugaðan brúðkaupsdag.

 Janúarbrúður er hyggin húsmóðir og vel að skapi farin

Febrúarbrúður er góðhjörtuð, ástrík eiginkona og blíð móðir

Marsbrúður er léttúðug skrafskjóða, gefin fyrir þrætur

Aprílbrúður er ósamkvæm sjálfri sér, ekki gefin fyrir að ræða alvarleg málefni, en fögur

Maíbrúður er fögur, vingjarnleg og líklega hamingjusöm 

Júníbrúður er örlát og áköf

Júlíbrúður er fögur, hugguleg í sér, en ögn örgeðja

Ágústbrúður er vingjarnleg og hagsýn

Septemberbrúður er háttvís, alúðleg og mjög vinsæl

Októberbrúður er fögur og ástrík en bæði daðurgjörn og afbrýðisöm

Nóvemberbrúður er frjálslynd og umburðarlynd

Desemberbrúður er í góðu jafnvægi, skemmtileg og hefur þörf fyrir tilbreytingu en er eyðslusöm

 

 

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi: