Þig langar í þennan fullkomna brúðarkjól en veist ekki hvar á að byrja. Þig langar að líta út eins og prinsessa á brúðkaupsdaginn en efast um að prinsessukjóll fari þér vel. Við val á brúðarkjól leggur brudkaup.is til að byrja á byrjuninni; finna út hvaða snið hentar þinni líkamsgerð best. Þannig fá ekki aðeins bestu hliðar þínar að njóta sín heldur mun þér líða vel í kjól sem þú passar í (þarft ekki að halda maganum inni allt kvöldið td) og getur verið aflsöppuð og notið brúðkaupsins í þeirri vissu að þú geislir af fegurð og hamingju.
Hér fyrir neðan er listi yfir mismunandi líkamsgerðir og það sem ber að forðast og fagna við val á réttu sniði fyrir þig:
Stundarglasið:
Þú ert brjóstagóð, með breiðar mjaðmir og grannt mitti.
Fagna: A-line brúðarkjóll með lágri mittislínu mun gera mikið fyrir þessa líkamsgerð - skelltu sweetheart hálsmáli á kjólinn og þá fær barmurinn virkilega að njóta sín. Fyrir þær sem vilja undirstrika þrýstinn líkamann enn frekar mælum við með td aðskornum kjól sem víkkar út við lærin (eins og hafmeyja) eða Trumpet sniði.
Forðast: Ballkjólasnið með Empire mitti (undir brjóstunum) á eftir að draga fram allt það sem ekki á að draga fram í þessari líkamsgerð. Hætta er á því að brúðurin virki eins og hún sé ekki í "réttum hlutföllum".
Stutt mitti:
Þú ert í góðum hlutföllum, allt á sínum stað, nema lengdin á milli rifbeina og mjaðma er nokkuð stutt.
Fagna: Prinsessukjóll sem er með aðskorinn efri hluta sem víkkar smám saman og endar í tilkomumiklu pilsi. Þetta snið mun lengja þessa líkamsgerð þannig að brúðurin virkar hærri og þá sérstaklega ef mittislínan er neðarlega. Hægt er að draga fram fallegar axlir með því að hafa portrait eða halter hálsmál.
Forðast: Sheath snið (beinir niður). Þetta snið dregur fram náttúrulega mittislínu brúðarinnar og þar sem kjóllinn er vanalega beinn niður getur hún virkað minni en hún er.
Breitt mitti:
Sama og fyrir ofan en í stað þess að vera með stutt mitti er það breitt og því nokkurn vegin bein lína á milli axla og mjaðma.
Fagna: Kjólar með Empire mittislínu (tekin saman undir brjóstum) henta þessari líkamsgerð mjög vel þar sem þau fela mittið og brúðurin virkar hærri.
Forðast: Prinsessu- eða basque mittislína mun draga of mikla athygli að mittinu og brúðurin getur jafnvel virst í meiri holdum en hún raunverulega er.
Þétt líkamsgerð:
Þú ert þéttari en flestar; brjóstagóð með svolítinn maga, rass og mjaðmir.
Fagna: Ballkjólasniðið gerir mikið fyrir þessa líkamsgerð, dregur fram það besta og felur annað. Einnig býr A-line sniðið til mjúkar ávalar línur og hentar því mjög vel.
Forðast: Sheath sniðið ber að forðast eins og heitan eldinn, það getur jafnvel bætt ófáum aukakílóum á óæskilega staði. Einnig mælum við síður með reimum fyrir þessa líkamsgerð (td efri hlutar sem hægt er að þétta að líkamanum með reimum í bakið).
Perulögun:
Rétt eins og hinn ljúffengi ávöxtur þá ertu grannvaxin efst en þéttari fyrir neðan mitti.
Fagna: Ballkjólasnið með berar axlir eða basque mittislína mun draga athyglina að efri hlutanum en fela þann neðri. Empire kjóll mun einnig draga enn meiri athygli að barmi og öxlum og þannig draga þannig athyglina frá neðri hlutanum.
Forðast: Allt sem er aðsniðið niðurávið ber að forðast td. sheath snið, hafmeyjusnið og trumpet snið. Öll þessi snið munu einnig draga mikla athygli að rass og mjöðmum og þannig mun efrri hlutinn ekki fá að njóta sín.
Grannvaxin:
Hvort sem þú ert hávaxin eða lágvaxin fer ekki mikið fyrir holdsmiklum líkamshlutum. Ballerínuvaxtarlagið.
Fagna: Þessi líkamsgerð fer mjög vel í ballkjólasniði ef brúðurin vill prinsessubrúðkaup. Ef látlaust brúðkaup er meira málið þá mælum við sterklega með Sheath sniðinu; slíkur kjóll myndi falla vel að grannvöxnum líkama.
Forðast: Konur með þessa líkamsgerð eru nokkuð frjálsar í sniðavali en þó ber þeim að forðast portrait- og halter hálsmál og einnig hálsmál sem falla niður af öxlum; í raun hálsmál sem draga of mikla athygli að viðbeinum (ef þau eru mjög áberandi).
Smágerð:
Þú ert lítil og nett - smábeinótt.
Fagna: Einfaldleikinn virkar best í þessu tilviki: Ef brúðurin er smágerð og velur sér stóran ballkjól eða prinsessukjól þá getur kjóllinn hreinlega gleypt hana. Mun betra er að velja látlausa kjóla með sheath- eða A-line sniði og leyfa náttúrulegri fegurð brúðarinnar að njóta sín.
Forðast: Þessi líkamsgerð er nokkuð frjáls í sniðavali en, eins og fram kemur að ofan, ber að forðast of stóra kjóla, mikið skraut og stór brúðarslör. Látleysi er lykilorðið.