Kostnaðurinn við brúðkaupið

Þegar stóru spurningunni hefur verið svarað játandi vakna upp fjölmargar aðrar spurningar; hvenær verður stóri dagurinn? Hvar ætlum við að gifta okkur? Hvar verður veislan? Ætlum við að hafa kvöldverð, kaffi eða hvað? Hvernig kjól ætlar brúðurin að klæðast og í hverju á brúðguminn að vera?

Fyrir utan það að tengjast brúðkaupinu ykkar eiga þessar spurningar það allar sameiginlegt að varða hluti sem kosta peninga. Hversu mikið eða lítið brúðkaupið ykkar mun kosta þá er ljóst að kostnaðurinn er dálítill pakki fyrir meðalstóra íslenska fjölskyldu. Nú til dags er allur gangur á því hver borgar hvað. Algengt er að allir hjálpist að; foreldrar brúðhjónanna og brúðhjónin sjálf deili með sér kostnaðinum. Hvernig sá kostnaður deilist svo niður er mjög misjafnt. Það færist einnig í aukana að brúðhjónin sjálf sjái alfarið um allan kostnað.

Best er að byrja fjárhagsáætlunina á því að gera sér raunhæfa hugmynd um hve miklum fjármunum má eyða. Hámarksupphæðin ræður umfangi brúðkaupsins. Ræðið við fjölskyldur ykkar strax í upphafi til að athuga hvort þær geti eða vilji aðstoða ykkur. Það er alls ekki skylda þeirra að taka þátt í kostnaðinum. Lítið frekar á það sem forréttindi og fallega gjöf ef aðstandendur ykkar vilja leggja fram aðstoð sína.

Mikilvægt er að gera greinagóða og skipulagða fjárhagsáætlun. Útgjöldin koma í bylgjum á stuttu tímabili. Ef til vill getið þið komist að samkomulagi um hver greiðir hvað. Foreldrar brúðar geta til að mynda greitt fyrir ljósmyndun, foreldrar brúðgumans fyrir fatnaðinn og brúðhjónin sjálf fyrir veitingarnar. Möguleikarnir eru endalausir.

Það er mjög góð hugmynd að stofna bankareikning sem einungis er ætlaður brúðkaupinu. Inn á þennan reikning er hægt að leggja til hliðar mánaðarlega ákveðna upphæð og annan aukapening sem fellur til og þið kjósið að eyða í brúðakaupið. Máltækið „margt smátt gerir eitt stórt" á vel við hér.

Þegar upp er staðið eru það iðulega veitingarnar sem eru dýrastar, allavega hér á landi. Ef boðið er uppá áfenga drykki þá kostar það sitt. Til að stilla þessum kostnaðarlið í hóf er mikilvægt að ákveða strax í upphafi hverskonar veitingar á að bjóða uppá og hversu mörgum gestum skal bjóða til veislunnar. Ef þið kjósið að bjóða uppá dýrar og veglegar veitingar gæti fjöldi gesta minnkað á móti, til að halda jafnvægi á fjárhagsáætluninni.

Þessi stund er merkisdagur fyrir flesta og því er mikilvægt að gera upp við sig hvað er ómissandi og hverju má sleppa. Ef draumurinn er sex hæða brúðarterta þá látum við það eftir okkur og drögum seglin saman á öðrum sviðum.

Með góðri skipulagningu má ná fram undraverðum sparnaði. Gefið ykkur góðan tíma í að hafa samband við fyrirtæki og gera samanburð á verði og þjónustu og finnið út tímanlega hvað hentar ykkur best. Helsu fyrirtæki sem þjónusta brúðkaup er hægta að finna í Þjónustuflokki okkar. Hér að neðan má finna töflureikni, eða excel-skjal, þar sem fylla má út í ólíka kostnaðarliði. Þannig má gera sér ljóst strax í upphafi hvað hlutirnir mega kosta og sjá í hvað stefnir.

 Fjárhagsáætlun fyrir brúðkaupið
Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi: