Gjafir fyrir gestina

Brúðkaupið er mjög sérstakur dagur í lífi konu og manns. Vinir og fjölskylda koma saman til að halda upp á ást tveggja einstaklinga sem þeim þykir vænt um og vilja deila gleðinni með brúðhjónunum á þessum hamingjuríka degi. Þau koma með góða skapið, dubba sig upp, bera gjafir undir annari og ferðast jafnvel langar leiðir til að taka þátt í gleðinni. Hví ekki að þakka þeim sérstaklega fyrir með persónulegum litlum gjöfum sem þau geta tekið með sér heim? Í raun skiptir varla máli hver gjöfin er því þessi óvænti glaðningur á eftir að gleðja alla gestina og minna þá á þennan sérstaka dag um ókomna tíð. Það þarf heldur ekki að kosta mikið því brúðhjónin geta dundað sér við td að föndra eitthvað lítið og skemmtilegt á kvöldin fram að brúðkaupinu; þannig er hægt að spara pening og gjöfin verður þeim mun persónulegri.

Við hjá Brúðkaup.is höfum tekið saman hugmyndalista yfir skemmtilegar smágjafir handa brúðkaupsgestum. Listinn er langt frá því að vera tæmandi en vonandi kitlar hann hugmyndaflugið hjá verðandi brúðhjónum:


1) Föndrið lyklakippur úr Fimo eða Sculpey leir
Leyfið hugmyndarfluginu að ráða og gerið þessar föndurstundir að sérstökum tíma fyrir ykkur tvö. Þið getið rætt brúðkaupið, brúðkaupsferðina og kelað á meðan leirinn bakast í ofninum. Leirinn er léttur í sér og bakast í venjulegum heimilisofni. Hægt er að kaupa lyklakippur og samskonar leir í flestum föndurverslunum.



2) Sætamerking og gjöf í einum pakka

Sniðugt getur verið að nýta sætamerkingar í eitthvað skemmtilegt sem gestirnir geta svo tekið með sér heim eftir veisluna. Td er hægt að nota myndaramma fyrir sætamerkingar og þannig eignast gestirnir fallegan keyptan eða föndraðan myndaramma sem þeir geta sett mynd af sér í veislunni eða brúðhjónunum í. Einnig er hægt að kaupa ísskápssegla (fást í flestum föndurbúðum), föndra flottar sætamerkingar og líma segul á bakhliðina, þá geta gestir skellt gjöfinni á ísskápinn þegar heim er komið til minningar um brúðkaupið.



3) Sætindi til að taka með heim

Ert þú eða unnustin góð að baka eða gera konfekt og ýmiss sætindi? Ef svo er þá getur verið sniðugt að baka litlar smákökur, gera konfekt eða eitthvað annað gómsætt sem að gestirnir geta tekið með sér heim að veislunni lokinni. Safnaðu saman í góðan hóp (vinkonur, vinir, fjölskylda) og takið frá einn dag í að dútlast í sætindunum. Sniðugt getur verið að skreyta sætindin í stíl við litaþema brúðkaupsins eða vera með tilvísun í skreytingar td. Flott er svo að pakka sætindunum inn í lítil box eða fallega efnisbúta með borða utanum svo auðvelt sé að taka þau með heim.


4) Búa til rómantískan geisladisk
Eigið ykkur fallega og rómantíska kvöldstund og komið ykkur saman um lagalista sem endurspeglar ykkar samband á einhvern hátt eða minnir á brúðkaupið. Ef sungin eru lög td í athöfninni þá er sniðugt að hafa þau með og einnig einhver lög úr veislunni. Ef þið eruð í sérstaklega hugmyndaríku skapi þá er hægt að raða lögunum þannig að textinn í þeim segir sögu ykkar frá fyrsta lagi til þess síðasta. Lagalistinn er svo brenndur á geisladiska og hver gestur fær afrit af honum heim með sér úr veislunni. Hægt er að leika sér með að skreyta diskana í fallegum litum, nota sem sætamerkingar, búa til falleg umslög utanum þá ofl.
Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi: