Óvissuferð frá Ólafsvík í hljóðver í Reykjavík

Undanfarin ár hefur það færst í aukana hér á landi að senda gæsir og steggi í hljóðver þar sem þau spreyta sig á lögum sem hópurinn hefur valið fyrir þau. Lögin eru oftast valin með húmorinn að leiðarljósi en fer það eftir hverjum og einum hvað á við í því sambandi. Steggurinn og gæsin græða góðar minningar á þessu en einnig upptöku sem þau taka með sér heim og geta spilað reglulega næstu áratugina, flissað saman og sungið með.

Þann 21. mai kom til Reykjavíkur í Hljóðver.is hópur af hressum stelpum alla leið frá Ólafsvík og sungu yfir lagið Are you human (sjá myndir fyrir neðan). Gæsin sem heitir Íris Ósk Jóhannsdóttir og er kölluð Möller af vinkonum sínum söng lagið af mikilli snilld. Heitir þá lagið í nýjum búningi og staðfært Are you humar. Þetta var mikið stuð og vinkonurnar sungu bakraddir í viðlaginu af mikilli innlifun og voru í miklu stuði þrátt fyrir það að bíllin hafði bilað í Borgarnesi og valdið smávægilegum töfum.
Svo fengu þær lagið í hraðmix á geisladiski með sér til að hafa í bílnum það sem eftir var af óvissuferðinni í Reykjavík. Síðan munu þær fá afhentan áprentaðan full hljóðblandaðan disk með myndum í umslagi strax eftir helgina.

Það hefur verið vinsælt fyrir hópa að koma í óvissu- og skemmtiheimsókn í hljóðverið sem er staðsett á Langholtsveginum í Reykjavík. Í boði er upptaka og hljóðblöndun á cover lagi með bakröddum ef óskað er, ljósmyndun og prentun á diskinn og í umslagið ásamt léttum kaffi veitingum. Nánari upplýsingar

 MYNDIR









www.hljodver.is  
jonas@hljodver.is  
 Facebook síða hljóðver.is

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi: