Um okkur
Þann 24. desember 2001 fór Gylfi á hnéin og bað Katrínu um að verða sín að eilífu. Svarið var að sjálfsögðu JÁ. Ákveðið var að þau yrðu gefin saman með lækkandi sólu eða nánar tiltekið í september 2002. Þegar hjónaleysin fóru að leita sér upplýsinga varðandi brúðkaup og þau mörgu atriði sem að þeim snúa, komust þau að því að það var engin íslenskur vefur sem gat gefið þeim nægilega góðar upplýsingar. Erlendis er til fjöldinn allur af vefsíðum sem eingöngu fjalla um þetta málefni, endalaus fróðleikur og upplýsingar. Þar sem Katrín hafði haft hugmyndir um slíka þjónustu lengi var nú kjörið tækifæri að láta verða af því. Katrín, sem unnið hefur með blómum í fjölmörg ár og einnig við veitingarekstur, ákvað að hefja skrásetningu á sinni visku um brúðkaup og setja upp vefsíðu svo aðrir gætu hlotið góðs af. Úr varð að þau hjónaleysin festu kaup á vefsíðunni brudkaup.is og munu þau vinna að því að vefurinn verði fullur af ýmsum fróðleik bæði fyrir verðandi brúðhjón og brúðkaupsgesti. Brudkaup.is mun verða gagnvirkur upplýsingavefur sem mun ávalt vera með nýjar og ferskar hugmyndir, upplýsingar og pistla sem tengjast brúðkaupum. Einnig mun vefurinn bjóða upp á brúðkaupsráðgjöf og leigu á brúðkaupsmunum í kirkju, veislu og á brúðkaupsbílinn.

Það varð svo að þau voru gefin saman með pompi og prakt í Háteigskirkju þann 7. september það árið. Séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur Bústaðarkirkju, sá um vígsluna. Nú getur Katrín samviskumsamlega gefið öðrum ráð í undirbúningi sínum þar sem hún hefur sjálf gengið í gegnum allt ferlið.
Annað veldi ehf tók við vefsíðunni í lok ársins 2009 en ný og endurbætt vefsíða var sett í loftið 7 janúar 2011.
Ljóst er að vefurinn þarf ávalt á ferskum hugmyndum að halda svo endilega hafið samband ef það er eitthvað sem þið viljið sjá inn á vefnum:
brudkaup@brudkaup.is. Þeir sem áhuga hafa fyrir að skrá fyrirtæki sitt á þjónustusíður er bent á að skrá sig inn með Facebook tenglinum uppi hægra megin. Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa á vefnum, og/eða óska eftir nánari upplýsinga þess efnis eru beðnir um að hafa samband einnig við:
brudkaup@brudkaup.is.
Með bestu kveðju,
Annað veldi ehf
Hákon Skúlason
framkvæmdastjóri
hakon@veldi.is