Frítt er að grunnskrá þjónustu sína á Brúðkaup.is. Allir þeir sem skrá sig í grunnskráningu geta skráð sig í einn þjónustuflokk og þar birtist skráningin í lista yfir skylda þjónustu. Þær upplýsingar sem hægt er að setja inn eru nafn, heimilisfang, bæjarfélag, netfang, símanúmer og svo lýsingu að hámarki 230 slögum.Hér að neðan eru leiðbeiningar fyrir grunnskráningu á brudkaup.isNota skal Facebook aðgang sinn í að stofna þjónustu á Brúðkaup.is með því að velja hnappinn Tengjast með Facebook. Ef viðkomandi á ekki Facebook aðgang er hægt að stofna hann hér . Skilyrði þess að nota þjónustu Brúðkaup.is er að eiga Facebook aðgang því annars er stjórnkerfið ekki aðgengilegt viðkomandi
Til þess að hægt sé að nota Facebook aðgang til að hafa aðgang að Brúðkaup.is þar viðkomandi að leyfa þann aðgang. Brúðkaup mun aldrei komast yfir notendanafn og lykilorð viðkomandi á Facebook en þær upplýsingar eru allar geymdar hjá Facebook. Þegar viðkomandi er innskráður birtast þær þjónustur sem tilheyra honum. Ef engar þjónustur eru til staðar stendur einungis Skrá þjónustuaðila fyrir neðan Facebook upplýsingar um viðkomandi. Til að stofna þjónustu skal velja skrá þjónustuaðila Við það birtist gluggi þar sem hægt er að fylla út upplýsingar um þjónustuaðila. Upplýsingarnar í þessum fyrsta glugga eru þær grunnupplýsingar sem þarf til þess að skrá fyrirtæki í grunnskráningu. Þeir sem einungis ætla að skrá þjónustu sýna í fría grunnskráningu skulu klára þetta skref og velja nýskrá og þá er grunnskráningu lokið. Þá kemur upp staðfestingagluggi um að skráning hafi heppnast og hægt að velja tengilinn skoða skráninguna til þess að sjá hvernig upplýsingarnar koma út.Hér birtist skráninginn í lista undir þeim þjónustuflokk sem var valinn við skráningu. Hafa samband tengillinn leiðir gest á rafrænt form sem fyllt er út og sendist á netfang þjónustuaðilans en netfang þjónustuaðila er ekki sýnilegt í grunnskráningu Á forsíðu birtist hið nýja fyrirtæki undir þjónusturnar mínar. Þar er hægt að velja viðkomandi þjónustu til að breyta henni.Þegar þjónusta er valin á forsíðu er farið á upphafssíðu fyrirtækisins og þar er hægt að breyta skráningu með því að velja þann hnapp. Ath að þeir sem eru með grunnskráningu geta fyllt út ítarlega skráningu þó svo að hún sé ekki sýnileg á vefnum. Þeir geta skoðað þessa ítarlegu skráningu sem innskráðir notendur.
Skráðu þig inn hér að neðan til að taka þátt í umræðum eða búa til þjónustusíður.
Viðtakandi: