Ítarleg skráning

Þeim sem eru með grunnskráningu bjóðast að kaupa ítarlega skráningu.  En þá eru skráðar inn allar upplýsingar sem á við þjónustu og svo er það birt á sér síðu undir Brúðkaup.is  Hér að neðan eru leiðbeiningar um hvernig skal fyllt út ítarlega skráningu og svo hvernig er staðið að greiðslu fyrir ársgjald.  Þeir sem hafa ekki enn lagt inn grunnskráningu þá er ráðlagt að byrja á því sjá hér leiðbeiningar um það

ATH greitt er ársgjald fyrir ítarlega skráningu sjá nánar hér um verðskrá

Hér að neðan eru leiðbeiningar fyrir ítarlega skráningu á brudkaup.is




Þegar grunnskráningu hefur verið lokið þá fer viðkomandi á forsíðu brudkaup.is og velur þar fyrirtækið sem skal skrá í ítarlega skráningu.





Valið er breyta skráningu til þess að fara i stjórntæki síðunnar.





Fyrsti flipinn eru upplýsingar en þar gefur að finna allar helstu upplýsingar um þjónustuaðilann og er mest af því notað í grunnskráningunni.  Ef viðkomandi vill bara vera í grunnskráningu þá þarf sá einungis að fylla út þennan flipa.





Undir flipanum myndir er hægt að vista logo/merki þjónustuaðila en þar er einungis ein mynd vistuð, ef vista á nýja mynd þar þá vistast hún yfir þá gömlu.
Það næsta við hliðina á logo eru myndasafnið en þar kemur fram veldu mynd úr tölvu þinni en þá er verið að tala um myndir sem tengist þeirri þjónustu sem þjónustuaðilinn býður uppá.  Sá sem leigir út sali vill birta alls konar myndir af salnum, veisluþjónustu af viðburðum ofl.




Undir annað er hægt að setja Facebook/Twitter slóð þjónustuaðila.  Hægt er að tengja eitt video við ítarlega skráningu en sjá nánar leiðbeiningar um það hér og því næst er hægt að setja inn staðsetningu með hjálp Google maps sjá nánar leiðbeiningar hér



Undir flipanum flokkar er hægt að velja hvar þjónustufyrirtækið er sýnilegt á síðunni.  Skráningar í þjónustuflokka geta verið hámark þrír fyrir einn þjónustuaðila en þannig getur t.d. hótel skráð sig í flokkana salur, veitingar og brúðkaupsnóttin.  Aðeins er hægt að velja einn vefsíðuflokk en þá birtist þjónustuaðilinn í lista undir þeirri síðu í veftré sem við á sjá hér dæmi um hárgreiðslustofur



Undir áskrift er hægt að greiða ársgjald til þess að fá ítarlega skráningu á brudkaup.is.  Eina sem þarf að gera hér að að slá inn netfang, samþykja skilmála og greiða






Við það flyst viðkomandi inn á örugga greiðslugátt hjá Borgun þar sem greiðsla á sér stað.  Þá þarf að fylgja leiðbeiningum á skjánum




Því næst birtist staðfesting þess efnis að greiðsla hafi farið í gegn og viðkomandi þá kominn með ítarlega skráningu á brudkaup.is.  Því næst er valið að fara til baka í verslun




Þá fær viðkomandi á skjáin kvittun frá Brúðkaup.is sem er ætlað til útprentunar ef þess er óskað


 



Ítarleg skráning er svo orðin sýnileg í lista yfir þjónustuaðila en fær þar enn meira vægi en þeir sem eru grunnskráðir.  Einnig koma þeir alltaf sem efstu niðurstöður.  Hér að neðan sést svo heildarskráningin:





Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.