
Það er ávallt best að hafa nægan tíma til stefnu þegar kemur að því að skipuleggja brúðkaup, sérstaklega ef um sumarbrúðkaup er að ræða en það er vinsælasti tíminn. Þó svo að kirkjur og fógeti geti gefið nokkur pör saman á einum degi þá er það oftast svo að hótel, salir og veitingahús geta einungis þjónað einu til tveimur brúðkaupum yfir daginn.