Hjónavígslan

Flest verðandi hjón á Íslandi leita til Þjóðkirkjunnar þegar kemur að vígslunni og fer þá athöfnin oftast fram í kirkju þar sem þjóðkirkjuprestur gefur hjónaefnin saman á nokkuð hefðbundinn hátt, nema um annað hafi verið samið. Hér á Íslandi eru þó ótal möguleikar aðrir sem standa til boða hjá mismunandi trúarhópum og svo er alltaf borgaraleg/veraldleg gifting ef hjónaefnin vilja ekki trúarlega athöfn.
Brúðkaup.is hefur tekið saman mismunandi vígslumöguleika á Íslandi með það í huga að hvert par geti fundið eitthvað við sitt hæfi á brúðkaupsdaginn. Vonandi gagnast þessi síða sem flestum.
Listinn er enn í vinnslu og því ekki tæmandi. Hafir þú upplýsingar um vígsluleiðir á Íslandi sem er ekki að finna í listanum hér til vinstri endilega sendu póst á
brudkaup@brudkaup.is - Allar ábendingar eru vel þegnar.