Borgaraleg vígsla

Borgaraleg vígsla stendur öllum til boða sem uppfylla skilyrði til hjúskapar. Flestar sýsluskrifstofur eru með rými (sal) til að framkvæma athöfnina en þar geta nokkrir af nánustu ættingjum og vinum hjónakornana komið saman á meðan á vígslunni stendur.

Sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra framkvæma borgaralegar hjónavígslur. Oftast fara vígslurnar fram á sýsluskrifstofu á virkum degi á hefðbundnum opnunartíma. Brúðkaup.is hefur þó heyrt af ýmsum frávikum í þessum efnum og margir sýslumenn og fulltrúar þeirra um allt land eru opnir fyrir því að ferðast á vígslustað sem verðandi hjónin hafa kosið sér og gefa þau saman þar, jafnvel þó vígslan sé á löglegum frídegi (laugardegi td). Þessi liðlegheit eru þó ekki algild og hvetjum við þá sem hafa hug á borgaralegri giftingu að hafa samband við sýsluskrifstofuna í sínu umdæmi til að kanna sérstaklega hverjir starfshættir varðandi hjónavígslur eru á þeim tiltekna stað.

Í Reykjavík fara borgaralegrar hjónavígslur að jafnaði fram á skrifstofu sýslumanns að Skógarhlíð 6, virka daga kl. 15:00 eða 15:30. Æskilegt er að ákveða stað og stund fyrir hjónavígslu með góðum fyrirvara. Gott er að vita hvort gestir eiga að vera við athöfnina eða hvort setja eigi upp hringa. Greiða þarf gjald í ríkissjóð fyrir hjónavígslu kr. 7.700.

Öll framlögð skjöl þurfa að vera í frumriti. Staðfest þýðing þarf að fylgja skjölum sem eru á öðrum tungumálum en ensku og norðurlandamálum. Óskað er eftir að öll skjöl vegna hjónavígslu séu lögð fram samtímis og að þau hafi verið lögð fram tveim vikum fyrir áætlaðan vígsludag. Ef það þykir þægilegra, þá má senda skjölin fyrst á faxi eða skönnuð í tölvupósti, en afhenda frumrit síðar, þó ekki seinna en 5 dögum fyrir áætlaðan vígsludag. Ef skjölin berast ekki innan tilskilins tíma, er litið svo á að ekki sé lengur óskað eftir hjónavígslu.

Þeir sem eru ríkisborgarar eða búsettir í Danmörku, Noregi, Svíþjóð eða Finnlandi, lesi þetta.

_________________________________________


Skjölin sem leggja þarf fram:

1. Hjónavígsluskýrsla
Eyðublað fyrir hjónavígsluskýrslu er hér, en einnig er hægt að nálgast á skrifstofu sýslumanns eða fá það póstsent. Hjónaefnin og tveir svaramenn skrifa undir hjónavígsluskýrsluna áður en hún er lögð inn. Svaramenn þurfa að vera 18 ára eða eldri og fjárráða, en þeir þurfa ekki að vera viðstaddir athöfnina sjálfa.

2. Fæðingarvottorð
Bæði hjónaefni þurfa að leggja fram fæðingarvottorð. Fæðingarvottorð fyrir Íslendinga eru gefin út hjá þjóðskrá Íslands, Borgartúni 21, Reykjavík. Erlendir ríkisborgarar þurfa að afla fæðingarvottorðs frá sambærilegu yfirvaldi í sínu heimalandi.

3. Hjúskaparvottorð
Bæði hjónaefni þurfa að leggja fram hjúskaparstöðuvottorð, það má ekki vera eldra en fjögurra vikna á áætluðum vígsludegi. Hjúskaparstöðuvottorð fæst hjá þjóðskrá Íslands, Borgartúni 21, Reykjavík. Ef hjónaefni býr erlendis, þarf sambærilegt gagn frá yfirvöldum þess lands.

4. Ef hjónaefni var áður í hjónabandi / staðfestri samvist sem lauk með lögskilnaði
Leggja þarf fram lögskilnaðarleyfi. Lögskilnaðarleyfi sem gefin voru út fyrir 1. júlí 1992 má nálgast í dómsmála - og mannréttindaráðuneytinu. Lögskilnaðarleyfi sem gefin voru út eftir 1. júlí 1992 fást hjá viðkomandi sýslumannsembætti. Erlend lögskilnaðarleyfi þarf að fá staðfest í dóms - og kirkjumálaráðuneytinu, Skuggasundi 3, Reykjavík - það gildir þó ekki um lögskilnaðarleyfi gefin út í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

5. Ef hjónaefni er ekkill / ekkja
Leggja þarf fram gögn er sýna að skiptum dánarbús sé lokið frá viðkomandi sýslumannsembætti.

6. Dvalarleyfi
Skilyrði hjónavígslu er að hjónaefni hafi löglega dvöl í landinu á vígsludegi. Erlendir ríkisborgarar þurfa að leggja fram gögn því til staðfestingar. Þar getur verið um að ræða dvalarleyfi, vegabréfsáritun eða sönnun um komudag (stimpill í vegabréf, flugmiði).
Upplýsingar um dvalarleyfi, vegabréfsáritanir og fl. eru á vef Útlendingastofnunar.

7. Skilríki
Sýna þarf skilríki með mynd (ökuskírteini, vegabréf). Það þurfa að vera vegabréf ef um erlenda ríkisborgara er að ræða.

Upplýsingar fengnar af vefsíðu Sýslumannsins í Reykjavík



Siðmennt


Einnig er hægt að framkvæma veraldlega/húmaníska athöfn hjá Siðmennt - Félagi siðrænna húmanista á Íslandi. Gifting Siðmenntar er ekki lögfesting og því þurfa þau pör sem leita til Siðmenntar að láta gifta sig borgaralega (lagalega) hjá sýslumanni þess sveitarfélags sem þau æskja. Borgaralega athöfnin þarf helst að fara fram nokkrum dögum á undan eða samdægurs veraldlegri athöfn Siðmenntar. Sjá nánar á heimasíðu Siðmenntar

Þjónustuaðilar
  • Sýslumaður Snæfellinga - Stykkishólmi
    Borgarbraut 2 | 340 Stykkishólmur | Sími: 430-4100
  • Sýslumaðurinn á Akranesi
    Stillholti 16-18 | 300 Akranes | Sími: 444-0100
  • Sýslumaðurinn á Akureyri
    Hafnarstræti 107 | 600 Akureyri | Sími: 464-6900
  • Sýslumaðurinn á Blönduósi
    Hnjúkabyggð 33 | 540 Blönduós | Sími: 455-2600
  • Sýslumaðurinn á Eskifirði
    Strandgötu 52 | 735 Eskifjörður | Sími: 470-6100
  • Sýslumaðurinn á Hólmavík
    Hafnarbraut 25 | 510 Hólmavík | Sími: 455-3500
  • Sýslumaðurinn á Húsavík
    Útgarði 1 | 640 Húsavík | Sími: 464-5000
  • Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
    Austurvegi 6 | 860 Hvolsvöllur | Sími: 488-4100
  • Sýslumaðurinn á Patreksfirði
    Aðalstræti 92 | 450 Patreksfjörður | Sími: 450-2200
  • Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
    Suðurgötu 1 | 550 Sauðárkrókur | Sími: 455-3300
  • Sýslumaðurinn á Selfossi
    Hörðuvöllum 1 | 800 Selfoss | Sími: 480-1000
  • Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
    Bjólfsgötu 7 | 710 Seyðisfjörður | Sími: 470-2100
  • Sýslumaðurinn á Siglufirði
    Gránugötu 6 | 580 Siglufjörður | Sími: 460-3900
  • Sýslumaðurinn Höfn
    Hafnarbraut 36 | 780 Höfn | Sími: 478-137
  • Sýslumaðurinn í Bolungarvík
    Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | Sími: 456-1200
  • Sýslumaðurinn í Borgarnesi
    Bjarnarbraut 2 | 310 Borgarnes | Sími: 433-7600
  • Sýslumaðurinn í Búðardal
    Miðbraut 11 | 370 Búðardalur | Sími: 433-2700
  • Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
    Bæjarhrauni 18 | 220 Hafnarfjörður | Sími: 565-2400
  • Sýslumaðurinn í Kópavogi
    Dalvegi 18 | 201 Kópavogur | Sími: 560-3000
  • Sýslumaðurinn í Reykjavík
    Skógarhlíð 6 | 105 Reykjavík | Sími: 569-2400
  • Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
    Heiðarvegi 15 | 900 Vestmannaeyjar | Sími: 488 1000
  • Sýslumaðurinn í Vík
    Ránarbraut 1 | 870 Vík | Sími: 488-4300
  • Sýslumaðurinn Ísafirði
    Hafnarstræti 1 | 400 Ísafjörður | Sími: 450-3700
  • Sýslumaðurinn Keflavík
    Vatnsnesvegi 33 | 230 Keflavík | Sími: 420-2400
Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.