1-2 dagar

 
  • Það þarf að sækja fötin ef þau eru leigð.
  • Allir mæta tímanlega á æfingu í kirkjuna.
  • Hringaberi þarf líka að fá æfingu.
  • Fara í handsnyrtingu (lakka neglurnar og þjala).
  • Þvo undirfötin, sérstaklega ef þau er ný.
  • Útnefnið þá aðila sem ætla að sjá um að allar gjafirnar komist heim til ykkar heilar og óskemmdar (einhver sem keyrir bíl en þið verðið að treysta fyrir). Oft á tíðum eru þær sóttar daginn eftir en ef þið viljið aðra leið þá þarf að vera búið að ákveða hana.
  • Farið í nudd eða sund til að slaka á og róa taugarnar. Þetta er tilvalin stund til að sitja saman í róleguheitunum (í heita pottinum t.d.) og ræða um atburði síðustu daga og framhaldið. Það vill oft gerast að parið sjálf hefur haft lítinn sem engan tíma til að ræða saman um daginn og veginn. Athyglin hefur öll verið á þennan merka atburð.
  • Brúðir; til gaman þá hugið að því hvort þið hafið: Something old, something new, something borrowed something blue. Það er auðvelt að fara eftir þessari gömlu ensku vísu. Sokkabandið er oft með bláum lit í, skartgripir geta verið gamlir og lánaðir. Giftingahringurinn getur táknað það nýja (eða nærfötin).

 

 PRENTVÆN ÚTGÁFA

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.