1 mánuður


  • Brúðir: verið vissar um að unnusti ykkar hafi valið sér föt fyrir daginn.
  • Haldið vel utanum um þau nöfn gesta sem þegar hafa tilkynnt sig.
  • Nú er tímabært að fara í prufu hárgreiðslutíma. Mætið með það hárskraut sem nota á og slörið líka. Ef tækifæri gefst þá prufið liti fyrir förðunina.
  • Sækið hringana, vel pússaða. Kíkið á áletrunin áður en þið yfirgefið verslunina til þess að vera viss um að hún sé rétt og skýr.
  • Versla morgungjafirnar fyrir hvort annað.
  • Fyllið út og skilið inn þeim pappírum sem til þarf fyrir hjónaband. Ef báðir aðilar eru Íslendingar er nóg að skila inn 1 viku fyrir vígslu en best er að hafa vara á og vera tímanleg. Sumir prestar sjá um þetta en ef annar eða báðir aðilar hafa verið í hjónabandi áður þarf að skila inn pappírum sem votta að því hjónabandi sé lokið. Alla pappíra er að fá hjá Sýslumanni og greiða þarf fyrir þau (ekki mikið, nokkur hundruð krónur). Pappírar þessir mega þó ekki vera eldri en 1 mánaðar (miðað er við giftingardagsetningu).
  • Staðfestið alla tónlist og söngatriði, plötusnúð o.fl.
  • Skipuleggja og panta æfingu í kirkjunni 1-2 dögum fyrir athöfnina.
  • Það er góð leið að skrifa á boðskortin að óskar sé eftir að viðkomandi láti vita hvort hann sjái sér fært um að koma eða ekki. Best er að hringja í þá aðila sem ekki hafa látið vita, á þann veg sparast tími og peningar þegar kemur að því að láta vita hve margir munu þiggja veitingar. 
  • Ákveðið tíma fyrir síðustu mátun á brúðarfatnaðinum. Þó svo að þið hafið mátað fötin einhverjum vikum fyrr þá getur það alltaf gerst, að við missum eða bætum við okkur á stundu sem þessari þar sem álagið getur orðið mikið.
  • Ef þið ætlið í brúðkaupsferð þá hugið að fatnaði o.fl. sem þarf að vera með í för.
  • Staðfestið alla fylgihluti t.d. hringapúða, skreytingar, kertastjaka o.fl.
  • Farið yfir og staðfestið blóm og skreytingar sem þið hafið pantað fyrir stóra daginn.
  • Sniðugt er að hafa einnota myndavélar á borðum í veitingasalnum. Þannig tryggið þið ykkur að fá myndir af öllum í veislunni og þetta veitir skemmtanagildi fyrir gestina. 
  • Ef þið hafið ekki gengið frá öllum fylgihlutum þá gerið það núna (skór, nærföt, taska, hanskar, hárskraut, kórónur, vasaklútur, sokkar, sokkabuxur, ermahnappar, slifsi, klútur o.fl.). Munið að ganga nýja skó til svo þið fáið ekki hælsæri á brúðkaupsdeginum sjálfum. 

 

 PRENTVÆN ÚTGÁFA

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.