1 vika

 
  • Nú er hægt að hefja skipulagningu við borðin (ef setið er til borðs í veislunni) og að búa til nafnspjöldin sem vísa til sætis (sætaspjöld). Það er erfitt að byrja á þessu ef það er ekki komin loka tala á gestafjöldanum og hverjir það eru sem koma, því er ágætt að bíða með þetta þar til 1-2 vikum fyrir.
  • Í framhaldi af skipulagning gesta við borðin þarf að búa til stór spjöld sem útskýrir vel hvar hver og einn á að sitja. Þessi spjöld eru svo sett upp á vegg eða látin standa á borðum eða gólfum svo allir geti séð er þeir ganga til sætis.
  • Snyrtistofa, báðir aðilar fari í t.d. handsnyrtingu, fótsnyrtingu, andlitsmaska o.fl. Brúðurin ætti að fara í minnsta lagi viku fyrir í plokkun og húðhreinsun. Húðin þarf tíma til að jafna sig eftir slíka meðferð.
  • Verið viss um að veislustjórarnir hafi allar þær upplýsingar sem hann eða þeir þurfa, t.d. gestalistinn, ræður, vínlistinn, matseðilinn o.fl.
  • Það þarf að ganga nýja skó til til að koma í veg fyrir hælsæri og önnur óþægindi.
  • Brúðgumar; tími til kominn að fara í klippingu.
  • Farið nú yfir sætaskipulag og verið viss um að engan vantar miða við þann fjölda sem hefur tilkynnt sig. Það er ágæt regla að hafa samband við þá sem ekki hafa látið vita, það borgar sig.
  • Náið í farmiðana ykkar fyrir brúðkaupsferðina ef við á.
  • Byrjið að pakka niður eða setja til hliðar það sem á að fara með í brúðkaupsferðina (föt, snyrtivörur, sólarvarnir, bækur, myndavél o.fl.).
  • Staðfestið tímann og óskir við ljósmyndarann.
  • Gefið upp loka tölu á gestum til veitingarþjónustunnar (það munar hvort pantað sé 10 matarskömmtum of mikið eða rétt tala).
  • Dreifið ábyrgð til ykkar nánustu á sjálfan brúðkaupsdaginn t.d. ef þið eigið börn hver sér um þau í kirkjunni, í athöfninni, eftir athöfnina, í myndatökunni o.s.frv. Það sama með brúðarmeyjar og/eða sveina.


  PRENTVÆN ÚTGÁFA


Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.