6-9 mánuðir

 
  • Yfirfarið og fínpússið gestalistann með fjölskyldum og foreldrum ykkar.
  • Skoðið eða ákveðið útlitið á boðskortunum. Best er að láta prenta allt í einu: boðskort, þakkarkort, borðkort, söngbækur og kirkjudagskrá.
  • Kíkja á slör, hárskraut, skó, sokkaband og aðra fylgihluti. Ef brúðguminn ætlar að kasta sokkabandinu til ógiftra karla þá er skemmtilegra að eiga auka sokkaband, brúðurin vill alveg örugglega eiga sitt sokkaband. 
  •  Ef þið ætlið í brúðkaupsferð þá er ekki seinna vænna að fara að huga að þeim málum. Athuga þarf hvort þið þurfið bólusetningu eða sérstaka vegabréfsáritun fyrir ferðina. Ekki gleyma að athuga hvort vegabréfið sé enn í gildi.
  • Brúðarkakan. Skoðið og leggið inn pöntun fyrir brúðarkökuna. Í dag er hægt á flestum stöðum að smakka ýmsar tegundir af kökum, útlitið er svo alveg undir ykkur komið.
  • Hvernig ætlið þið að fara til og frá kirkju? Það er hægt að leigja limmósínur, fornbíla o.m.fl. Verið tímanleg í pöntun á bílnum ef þið ætlið að leigja hann. Verið viss um að ökumaður fylgi með, ef ekki þá gerið ráðstafanir fyrir þann hluta. Svo er alltaf hægt að fá bíl að láni frá fjölskyldumeðlim eða vini. Þó svo þið pantið ekki strax þá borgar það sig að hugsa málin og skoða.
  • Ákveðið tíma með ljósmyndaranum. Ef einhverjar sérstakar óskir eru til staðar þá endilega ræðið þær við hann (t.d. myndir af undirbúningnum).
  • Það er aldrei of seint í rassinn gripið að byrja að hreyfa sig!!
  • Veljið brúðarmeyjar, brúðasveina, svaramenn.
  • Ef brúðarmeyjar eða sveinar verða þá þarf að panta, sauma eða kaupa viðeigandi föt, skó, hárskraut, blómakörfu o.fl.


 Prentvæn útgáfa

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.