8 vikur


  • Ef þið hafið ekki enn sent boðskortin þá setjið loka punktinn á gestalistann og klárið að skrifa kortin. Í síðasta lagi 6-8 vikum fyrir brúðkaupsdaginn þarf að senda út boðskortin.
  • Ef þið ætlið að hafa dagskrá í kirkjunni og/eða veislunni þá er nú tímabært að látið prenta slíka dagskrá (ef þið eruð ekki þegar búin að því). Með því að hafa dagskrána niður skrifaða eru minni líkur á að hlutirnir gleymist eða ruglist (t.d. hver er tímaröðin á sálmunum og lögunum í kirkjunni). Að sjálfsögðu er hægt að notast við venjulega tölvu og prentara, það sparar tíma og peninga.
  • Heimsækja snyrtistofur, ljósastofur, líkamsrækt. Það er ekki sniðugt að fara í ljós rétt fyrir stóra daginn og eiga jafnvel á hætt á að brennast. Betra er að fara í nokkra tíma á löngum tíma svo húðin venjist og fái ekki óvenjulegan roða.
  • Ef nota á hringapúða þá þarf að panta hann og þá sérstaklega ef rita á nöfn brúðhjónanna og/eða dagsetninguna. Ákveðið hver á að vera hringaberi.
  • Veljið glösin sem þið munuð skála með. Skemmtilegt er að láta grafa eða rita á þau nöfn ykkar og dagsetningu.
  • Panta þarf gistingu (eða finna aðra leið) fyrir þá gesti sem búa langt í burtu og hafa ekki tækifæri á að komast heim til sín að veislu lokinni.
  • Gefa veislustjóranum allar þær upplýsingar sem hann þar t.d. fjöldi gesta.
  • Byrjið að huga að heilsunni. Of mikil streita getur kallað á veikt ónæmiskerfi sem eykur líkur á flensu og pestum. Borðið hollan mat og takið vítamín. Enn einusinni: það er ekki of seint að byrja að hreyfa sig. 
  • Skráið niður óskalög fyrir hljómsveitina, söngvarann eða plötusnúðinn. Það sama ef það eru einhver lög sem þið viljið alls ekki að séu spiluð.
  • Brúðir: Hvaða skartgripi ætlið þið að nota?
  • Það er mjög jákvætt að greiða inná reikning hjá þeim aðilum sem verið er að kaupa þjónustu af (veitingar, ljósmyndari, tónlistaviðburðir o.fl.).


 PRENTVÆN ÚTGÁFA

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.