9-12 mánuðir

 
  • Byrjið á að ákveða dagsetningu sem allir eru sáttir við. Hérna skiptir máli að mikilvægir aðilar í lífi ykkar komist á þeim tíma sem þið hafið hugsað ykkur.
  • Ákveðið hvernig veislu þið viljið halda; stærðin,dag- eða kvöldveisla, matur, kaffi, pinnamatur eða annað.
  • Gerið fjárhagsáætlun. Mikilvægt er að vera sammála um hvað brúðkaupið má kosta, það er auðvelt að fara langt fram úr áætlun ef hún er ekki skrifuð niður. Það þarf að vera nokkuð skýrt hver borgar hvað. Í nútíma þjóðfélagi er algengt að allir hjálpist að, foreldrar beggja aðila og brúðhjónin sjálf, það færist þó í aukana að brúðhjónin sjálf greiði meirihlutann (ef ekki allt). Ef þið greiðið sjálf hluta eða allt er sniðugt að stofna sérstakan bankareikning og leggja inná hann reglulega.
  • Skoðið og veljið ykkur kirkju eða þann stað sem þið viljið láta gefa ykkur saman.
  • Farið og ræðið við prest eða annan aðila sem mun gefa ykkur saman.
  • Fyrstu drög af gestalista. Það er gott að gera hann í samráði með foreldrum. Best er að ákveða í upphafi hversu skilda ættingja þið viljið bjóða t.d. systkinabörnum foreldra ykkar og börnum þeirra eða jafnvel enn lengra. Ef þessi mörk eru ljós er mun auðveldara að skrá niður alla ættingja og vini, það er alltaf hægt að taka út eða bæta við en það er mjög leiðinlegt ef einhver verður eftir.
  • Látið ættingja og vini sem búa erlendi vita af væntanlegu brúðkaupi svo þau geti skipulagt heimferð o.fl.
  • Farið og skoðið Sali, hótel eða staði þar sem kæmi til greina að halda veisluna. Því fyrr sem salurinn er bókaður því betra (aðeins ein brúðhjón geta fengið hvern sal á hverjum degi). Hérna fylgir með að ákveða hver sér um veitingar þ.e.a.s. ef slík þjónusta fylgir ekki með salnum eða hótelinu.
  • Fáið tilboð frá veisluþjónustum varðandi veitingarnar í veislunni. Sumir bjóða uppá matarsmökkun á þeim réttum sem í boði eru. Skiljanlega þarf ekki að leggja inn endanlega pöntun núna en allavega gera sér hugmyndir um það hvernig matseðillinn gæti litið út. Ef veisluþjónustan sér ekki um að baka kökuna þá ræðið við bakarí og skoðið það sem í boði er.
  • Athugið hver útvegar borðbúnað. Iðulega sjá veisluþjónusturnar um borðbúnað og dúka en það er ekki sjálfgefið og um að gera að spyrja um það.
  • Tónlist í kirkju og veislu. Ef brúðkaupið er á annasömum tíma (júní-júlí) þá borgar það sig að panta allt svona sem allra fyrst til þess að tryggja að þið fáið það sem þið viljið.
  • Skoðið og berið saman verk eftir mismunandi ljósmyndara. Þetta er eitt af þeim fáu atriðum sem ekki á að spara við því myndirnar eru það eina sem lifir um ókomna tíð fyrir utan minningar okkar. Þess vegna viljum við að brúðaralbúmið okkar verði fallegt og vel gert.
  • Ákveða liti og þema á blómunum. Oft er talað um að ákveðið þema sé notað þ.e. að sömu blóm og litir eru notað í allar skreytingar og í brúðarvöndinn, jafnvel kerti og servéttur. Það þarf t.d. að panta brúðarvöndinn (muna eftir auka litlum vendi til að kasta til ógiftra kvenna), barmblóm fyrir svaramennina og brúðgumann og svo ef þið viljið þá þarf líka að panta: blómakörfur, skreytingar í kirkju, skreyting á brúðarbílinn, skreyting í veislusalinn o.fl.
  • Ef leigja á blómaskreytingar þá er best að leggja pöntun inn sem fyrst. Til er mikið af fallegum skreytingum svo það borgar sig að fara og skoða hvað er til áður en ákveðið er hvað á að leigja.
  • Byrjið að huga að brúðarfötunum ykkar. Gott er að skoða blöð og myndir og pantið tíma hjá brúðarfataleigu til að fá að máta. Brúðir! það er aldrei of snemmt að finna draumakjólinn.
  • Ef sauma á fötin þá verið tímanlega í að pantið tíma hjá klæðskera, betra er að hafa fötin tilbúin löngu fyrir stóra daginn frekar en að þau verði tilbúin á síðustu stundu og auka þ.a.l. á óþarfa stress og áhyggjur.
  • Hugið að pöntun fyrir brúðkaupsferð ef þið hafið hug á slíku.
  • Ef óskað er eftir þá þarf að panta hótelherbergi fyrir brúðkaupsnóttina.
  • Það er góð regla að gera skriflega samninga við þá aðila sem verið er að eiga viðskipti við, á þann veg er hægt að koma í veg fyrir öll leiðindi þegar að greiðslu kemur. Hver kannast ekki við að hafa fengið vilyrði fyrir afslætti ef verslað er fyrir ákveðna upphæð og svo þegar til kastana kemur þá man enginn neitt. Skrifið niður og fáið undirritað (sérstaklega fyrir stóru pantanirnar, matur og vín) þannig er komið í veg fyrir misskilning.
  • Gott er að halda möppu um alla þá bæklinga og upplýsingar sem þið fáið frá þjónustuaðilum (veitingar, skemmtun, hótel o.fl.).

 

 Prentvæn útgáfa

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.