Ákveða daginn og tímann


  • Gott er að byrja á að velja árstíð, hafið veður og frídaga til athugunar.
  • Þið þurfið bæði að vera laus í kringum þann dag sem þið veljið, engar stórar uppákomur í vinnunni t.d. eða barneignir.
  • Athuga þarf tímasetningar skóla t.d. próflestur, páskafrí o.s.frv.
  • Ef þið veljið sumartímann er sniðugt að sækja um sumarfrí á svipuðum tíma og nýta það í undirbúning og til að hvílast eftir á (brúðkaupsferð t.d.).
  • Ef þið eigið barn/börn á leikskólaaldri er ágætt að leyfa þeim að vera í skólanum á meðan mesti undirbúningur fer fram, það veldur minni streitu fyrir alla. Ef þið eigið barn/börn á skóla aldri er ágætt að athuga hvort einhverskonar námskeið (leikjanámskeið, fótboltanámskeið) séu til staðar nokkru fyrir brúðkaupið þegar spennan er sem mest.
  • Þið þurfið að vera viss um að nægur tími sé til stefnu til að plana brúðkaup eins og þið viljið, t.d. ef nákomnir ættingjar eða vinir eru búsettir erlendis þá er 1-2 mánuðir oft stuttur tími til að fá frí frá starfi eða námi og panta flug til Íslands. Það sama má segja með veisluþjónustur og veitingasali, það verður að vera góður tími til stefnu.
  • Oft er gott að byrja á því að útiloka þær dagsetningar sem ekki koma til greina (t.d. stórafmæli í fjölskyldunni, foreldrar erlendi eða útskrift).
  • Mikilvægt er að kanna hvort allra nánustu ættingjar og vinir hafi þegar skipulagt t.d. sumarfrí, vetrarfrí sem áhrif gæti haft á val á stóra deginum.
  • Kanna þarf hvort kirkjan sem þið viljið giftast í sé laus þá dagsetningar sem koma til greina. Það sama með veislusalinn eða hvar sem þið haldið veisluna.
  • Munið að gera þakkarlista = skrá hjá sér hver gaf hvaða gjöf. 

 


  PRENTVÆN ÚTGÁFA

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.