Brúðkaupsnóttin
Ef þið gistið annars staðar en heima hjá ykkur þá væri tilvalið að fara með nokkrar nauðsynjarvörur á áfangastaðinn t.d.
- Tannbursti,
- Nauðsynlegar snyrtivörur,
- Þægileg en sexy náttföt,
- Föt til að fara í daginn eftir,
- Morgungjafirnar,
- Nestispakka, þið gætuð lent í að vera matargrönn í veislunni eftir allt stressið og hamingjuna. Svengdin mun eflaust láta á sér bera þegar þið fáið að slappa af tvö ein og þá er gott að hafa eitthvað girnilegt til að narta í, jafnvel afganga úr veislunni og ekki síst;
- Litla apótekið, kampavín/freyðivín kallar oft á höfuðverk og því nauðsynlegt að hafa einhverjar verkjastillandi töflur við höndina. Þetta er einmitt ekki nóttin sem sagt er: elskan ég er með hausverk!!!
- Munið svo ef það eru einhverjir sérstakir hlutir sem þið viljið hafa með, t.d. nuddolía, lúdó ...eða hvað sem ykkur finnst ómissandi á brúðkaupsnóttinni ykkar
Sumt af þessu er hægt að koma með fyrr um daginn því iðulega eru hótelherbergi laus frá hádegi. Annað er auðvelt að hafa tilbúið í tösku sem ákveðinn aðili, sem þið tilnefnið, ber ábyrgð á að fari með ykkur er þið yfirgefið samkvæmið.
PRENTVÆN ÚTGÁFA
Hér fyrir neðan deila nýgiftar konur með okkur reynslu sinni af brúðkaupsnóttinni Ég og sjónvarpstækið Við héldum útibrúðkaup á einum heitasta deg...
Meira