Dagarnir á eftir

 
  • Farið með fötin í hreinsun. Verið viss um að hreinsunin kunni til verka.
  • Takið saman hvaða reikninga á eftir að borga (ef þið sjáið um greiðslu).
  • Ef þið voruð með einnota myndavélar (og venjulegar) þá farið með þær í framköllun.
  • Skrifið nafnalista fyrir þakkarkortin. Þar eru nöfn allra er sýndu hlýhug til ykkar á brúðkaupsdeginum, líka til þeirra sem sendu ykkur símskeyti. Sumir nota jólakortin sem þakkarkort.
  • Brúðir: ef þið viljið varðveita brúðarvöndinn (barmblómið) þá fáið leiðbeiningar hjá blómaskreytaranum ykkar með bestu aðferðina.
  • Búið til brúðarmyndaalbúm þar sem þið safnið saman minningum, t.d. söngbókin úr veislunni, nafnspjöldin af borðinu ykkar o.fl.
  • Ekki gleyma að þakka þeim er reiddu fram hjálparhönd, hversu stór eða lítil hún var.

 

 PRENTVÆN ÚTGÁFA

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.