Neyðartaska brúðhjóna

Hér er um að ræða mikilvægan hlut sem engin ætti að láta vanta. Þetta er í fljótu bragði sagt taska eða poki með nokkrum nauðsynjavörum sem oft vilja gleymast. Þessi taska á að fylgja brúðurinni og einhver nákiminn þarf að bera ábyrgð á því að hún sé til staðar allan tíman. Innihald töskunnar skiptist í mismunandi hópa.


  • Verkjatöflur.
  • Brjóstsviðstöflur, þær eru til sem tuggutöflur.
  • Plástrabox með mis stórum plástrum í húðlit.
  • Nefsprey, gott að nota ef það byrjar að leka úr nefinu.
  • Hálsbrjóstsykur, hann eykur líka munnvatnið.
  • Magastyllandi lyf eins og t.d. Samarin. Það er leyst uppí vatni og er gott við ónoti í maga.
  • Dömubindi eða innlegg.
  • Glært púður sem brúðhjónin geta notað fyrir myndatökuna.
  • Blautklútar, þeir eru hentugir til handaþrifs o.fl.
  • Tissjú-pakki úr mjúkum pappír svo nefið verði ekki rautt.
  • Hárspennur (bobby pins) og nóg af þeim.
  • Barnapúður (virkar m.a. mjög vel til að fela bletti á hvíta/ljósa kjólnum-bara rétt að bleyta og svo skella púðrinu yfir).
  • Snyrtidót (ef eitthvað skildi týnast).
  • Hreynsikrem fyrir andlitið og ef klínist í fötin.
  • Fatarúlla. Alveg bráðnauðsynlegt, sérstaklega fyrir dökk föt.
  • Svitalyktareyðir.
  • Ilmavatn og rakspíri.
  • Naglaþjöl.
  • Naglalakk, þá sérstaklega ef brúðurinn er með litað naglalakk en einnig glært naglalakk til að stoppa lykkjuföll á nælon sokkabuxum.
  • Naglalakkaeyðir.
  • Lítil handklæði sem eru tilvalin til að setja um hálsinn þegar verið er að snyrta og laga andlitsmálinguna.
  • Hárþurka. Hún nýtist ekki einungis fyrir hárþurkun heldur líka blaut svæði eftir blettaþvott á fötum.
  • Hársprey og aðrar hárvörur (bursti, greiða, gel, glimmer o.fl.).
  • Tannbursti og tannkrem.
  • Eyrnapinnar.
  • Nál og tvinni í ýmsum litum (fyrir brúður, brúðguma, foreldra o.fl.).
  • Auka tölur og smellur.
  • Straujárn.
  • Auka sokkabuxur í þeim lit sem notast er við.
  • Sikkrisnælu, þær eru til alls nýtanlegar.
  • Lítil skæri.
  • Blettaeyðir fyrir fataefni (til eru efni sem virka á misjafna bletti t.d. rauðvínsbletti-blóð-grasgræna o.s.frv.).
  • Gott er að hafa litla símabók með upplýsingum um t.d. símanúmer og nöfn þeirra aðila sem verið er að kaupa þjónustu af (ljósmyndari, blómaverslun, veitingaþjónusta, söngvarar o.fl.).
  • Hleðslutæki fyrir GSM-símann.
  • Auka myndavélar.
  • Svaladrykki, sótavatnið er m.a. gott til notkunar á blettahreynsun.
  • Límbandsrúlla, maður veit aldrei hvað þarf að líma saman (kökutoppurinn, skóhælar eða kerti).

 

 PRENTVÆN ÚTGÁFA

Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi: