Tékklisti fyrir myndatöku

Þegar kemur að því að brúðhjónin bóka ljósmyndara fyrir brúðkaupið sitt er vert að huga að því að fá góðan og reyndan aðila. Þær minningar sem brúhjónin rifja upp ár eftir ár endurspeglast af þeim myndum sem teknar voru á þessum merkis degi. Þennan dag er ekki hægt að endurtaka og því mikilvægt að tryggja að myndirnar verði góðar og að þær séu af þeim atburðum sem brúðhjónunum er efst í huga (t.d. amma gamla sem kom í kirkjuna til að sjá yngsta barna barn sitt ganga í það heilaga).

Besta leiðin til að tryggja að ljósmyndarinn myndi réttu andartökin við bestu aðstæður er að búa til einskonar „má ekki missa af” listi. Þennan lista fara brúðhjónin yfir með ljósmyndaranum til að tryggja að hann skilji rétt hvað verið er að byðja um. Það að setjast niður með ljósmyndaranum í rólegheitum og fara yfir óskir og væntingar og hvernig brúðarmyndatakan sjálf fer fram og hve mikinn tíma hún tekur, róar oft brúðhjónin. Ef ákveðið er að taka brúðkaupsmyndirnar úti við þarf að hafa vara á og hafa annan stað inni við ef veðrið skildi verða vont. Ef til vill er ekki nægur tími fyrir ljósmyndarann að vera viðstaddur undirbúning bæði hjá brúðinni og hjá brúðgumanum (ef þau hafa sig til á sitt hvorum staðnum) og því nauðsynlegt að hafa sína eigin myndavél með í för. Hér koma hugmyndir af „má ekki missa af” ljósmyndaskotum sem gætu verið á ykkar lista.
Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi:

succeed
Aðgerð heppnaðist

Takk fyrir.