Herrafatnaður

Í öllu umstanginu í kringum brúðina og hverju hún á að klæðast gleymist klæðnaður brúðgumans stundum og jafnvel skellt á hann jakkaföt á síðustu stundu sem hann kann ekki við. En flestir brúðgumar vilja einnig líta vel út á brúðkaupsdaginn og skiptir jafn miklu máli að þeim líði vel að utan jafnt sem innan og brúðunum. Þannig má fara að huga að klæðnaði brúðgumans með góðum fyrirvara þannig að hann geti gefið sér nægan tíma til að finna herrafatnað sem honum líður vel í og endurspeglar hans innri mann.
Mikið úrval er til af fallegum jakkafötum, en svo er líka hægt að klæðast smóking, íslenska hátíðarbúningnum, eða einhverju allt öðru sem hentar vel. Þó svo það sé skemmtileg regla að sjá ekki hvort annað í brúðarklæðnaðinum, fyrir brúðkaupið sjálft, er ekki vitlaust að setjast niður saman og ræða aðeins hugmyndir varðandi fataval áður en rokið er af stað í búðir. Það er skemmtilegra ef klæðnaður ykkar passar vel saman þegar þið hittist uppi við altarið.
Hér fyrir neðan má finna þau fyrirtæki og einstaklinga sem veita verðandi brúðgumum þjónustu varðandi val á fatnaði fyrir brúðkaupið. Þau fyrirtæki sem eru
feitletruð eru með nánari upplýsingar um þjónustu sína og myndir sem hægt er að sjá ef smellt er á nafn fyrirtækisins.
Sjónvarpsþættirnir Mad Men sem sýndir eru á Stöð 2 hafa heldur betur slegið í gegn á Íslandi en það sem ekki margir vita er að einnig hefur slegið í g...
Meira
Þjónustuaðilar
-
Andrés herradeild
Skólavörðustíg 22a |
101 Reykjavík |
Sími: 551 8250
-
Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar
Kjörgarði Laugavegi 59 |
101 Reykjavík |
Sími: 5111817
-
Herrafataverslun Sævars Karls
Bankastræti 7 |
101 Reykjavík |
Sími: 551 3470 |
Hafa samband
-
Herrahúsið-Adam
Laugavegi 47 |
101 Reykjavík |
Sími: 5529122 |
Hafa samband
-
Verslun Guðsteins Eyjólfssonar sf
Laugavegi 34 |
101 Reykjavík |
Sími: 551 4301 |
Hafa samband