Brúðkaupsnóttin

Ef þið gistið annars staðar en heima hjá ykkur þá væri tilvalið að fara með nokkrar nauðsynjarvörur á áfangastaðinn t.d. tannbursti, nauðsynlegar snyrtivörur, þægileg en sexy náttföt, föt til að fara í daginn eftir, morgungjafirnar, nestispakka, þið gætuð lent í að vera matargrönn í veislunni eftir allt stressið og hamingjuna. Svengdin mun eflaust láta á sér bera þegar þið fáið að slappa af tvö ein og þá er gott að hafa eitthvað girnilegt til að narta í, jafnvel afganga úr veislunni og ekki síst litla apótekið, kampavín/freyðivín kallar oft á höfuðverk og því nauðsynlegt að hafa einhverjar verkjastillandi töflur við höndina. Þetta er einmitt ekki nóttin sem sagt er: elskan ég er með höfuðverk!!!

Sumt af þessu er hægt að koma með fyrr um daginn því iðulega eru hótelherbergi laus frá hádegi. Annað er auðvelt að hafa tilbúið í tösku sem ákveðinn aðili, sem þið tilnefnið, ber ábyrgð á að fari með ykkur er þið yfirgefið samkvæmið.

Hér má finna þau fyrirtæki og einstaklinga sem veita þjónustu til verðandi brúðhjóna og gestum þeirra. Eins og gefur að skilja þá er af mörgu að taka og um að gera að skoða allt sem í boði er. Þau fyrirtæki sem eru feitletruð eru með nánari upplýsingar um þjónustu sína og myndir sem hægt er að sjá ef smellt er á nafn fyrirtækisins.
Þjónustuaðilar
  • Gistiheimilið Kríunesi
    v/Elliðavatn | 203 Kópavogi | Sími: 567-2245 | Hafa samband
  • Hótel Hérað
    Miðvangur 5-7 | 700 Egilstaðir | Sími: 4711500 | Hafa samband
  • Icelandair Hótel
    Nauthólsvegur 52 | 101 Reykjavík | Sími: 4444000 | Hafa samband
Spjallborðið
Senda fyrirspurn

Viðtakandi: