Vín
Magn fljótandi veiga í veislunni
Ef gestum er boðið uppá vín í brúðarskálinni og með veitingum er vissara að magnið sem keypt er sé í réttu hlutfalli við gestina. Það er mjög pínlegt að þurfa að hætta að veita gestum veigar um miðbik veislunnar. Til eru þumalputtareglur um hversu mikið magn má áætla að þurfi af víni í brúðkaupsveisluna. Eins og segir er þetta einungis viðmiðun en ekki algild regla og því er betra að kaupa meira en minna og skila þá frekar að veislu lokinni. Vínbúðin tekur á móti óopnuðum flöskum og greiðir fullt gjald fyrir þær til baka - Munið bara að geyma kvittunina þegar vínið er keypt.
Brúðarskál:
Í einni kampavíns- eða freyðivínsflösku má áætla ein 6-7 glös. Nú er spurning hversu lengi þurfa gestir að bíða eftir brúðhjónunum. Því lengri sem biðin er því meira er drukkið. Ágætt er að reikna með 2-3 glös á mann en það ætti að duga í um 40-60 mín.
Forréttur:
Ein léttvínsflaska gefur um 5-6 glös en þá er um að ræða hina hefðabundnu stærð, 75 cl. Í dag er hægt að kaupa lítersflöskur auk stærri eininga. Ef forréttur er aðskilin frá aðalrétti þá er algengt að reikna með 1-2 glös af hvítvíni með forréttinum.
Aðalréttur:
Sumir halda áfram að drekka hvítvín og því mikilvægt að gera ráð fyrir að eiga hvítvín með aðalréttinum fyrir þá sem vilja. Rauðvín/hvítvín með aðalréttinum geta verið um 3-4 glös.
Eftirréttur:
Að bjóða uppá drykk með eftirréttinum eða kaffinu færist í aukana. Oftast er um að ræða sterkara vín eins og t.d. koníak og líkjörar. Lítrinn af þessari tegund áfengis er mun dýrara en léttvínið og því allur gangur á hvort boðið sé uppá slíka drykki. Ef svo er þá ekkert dónalegt við að bjóða einungis uppá eitt glas fyrir hvern gest, tvöfaldur drykkur. Algengt er að gestir geti valið á milli tveggja t.d. líkjör eða koníak/brandi.
Það má ekki gleyma að uppsetning veislunnar skiptir miklu máli. Ef um er að ræða svo kallaða standandi veislu þar sem gestir standa með matinn og þjónustufólk gengur um og skenkir í glösin er misjafnt hvað hver gestur fær oft fyllingu í glasið. Ef um er að ræða veislu þar sem setið er til borðs gengur þjónustufólkið jafnt á öll borðin og skenkir í glösin. Ef flöskur eru skildar eftir á borðum má vel gera ráð fyrir að magnið á víni aukist til muna.
Gleymið ekki að bjóða uppá óáfengadrykki með, íslenska vatnið stendur alltaf fyrir sínu. Hér að neðan má finna þau fyrirtæki og einstaklinga sem veita þjónustu til verðandi brúðhjóna og gestum þeirra. Eins og gefur að skilja þá er af mörgu að taka og um að gera að skoða allt sem í boði er. Þau fyrirtæki sem eru
feitletruð eru með nánari upplýsingar um þjónustu sína og myndir sem hægt er að sjá ef smellt er á nafn fyrirtækisins.
Skoðið vínið hér til hliðar og fræðist um tegundirnar!
Þjónustuaðilar
-
Áman - víngerðarverslun
Háteigsvegur 1 |
105 Reykjavík |
Sími: 533-1020 |
Hafa samband
-
Karl. K. Karlsson
Skútuvogi 5 |
104 Reykjavík |
Sími: 540-9005 |
Hafa samband
-
Létt og Gott
Hafnarfirði |
220 Hafnarfirði |
Sími: 5787878 |
Hafa samband
-
Mekka Wines&Spirits
Tunguháls 11 |
110 Reykjavík |
Sími: 5222750 |
Hafa samband