|
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
|
Nú er sumarið að ganga í garð, en það er sú árstíð sem vinsælust er fyrir brúðkaup. Þegar fólk ákveður að láta pússa sig saman er margt sem þarf að huga að. Á brudkaup.is getur þú fundið allt um brúðkaupið á einum stað. Hér má finna fréttir og ýmiskonar skemmtiefni og fróðleik sem nýtist við undirbúning brúðkaupsins.Á undirsíðunni Útlit og heilsa er að finna lista yfir flestöll þau fyrirtæki sem bjóða upp á þjónustu er varðar útlit og heilsu brúðhjónanna. Má þar nefna hárgreiðslu- og snyrtistofur, líkamsræktarstöðvar, brúðarfataleigur, skartgripaverslanir og verslanir með fylgihluti af ýmsu tagi. Þarna má líka finna greinasafn og ýmiskonar fróðleik sem snertir útlitið og heilsuna, sem og fjölmargar mataruppskriftir. Síðan Undirbúningur heldur utan um allt það sem huga þarf að í undirbúningnum fyrir brúðkaupið. Meðal annars má þar nefna tékklistana, sem aðstoða brúðhjónin skref fyrir skref við allt sem þarf að gera árið fyrir brúðkaupið. Með því að notast við tékklistana má varast það að gleyma mikilvægum hlutum og vera fullviss um að koma öllu í verk á réttum tíma. Á undirbúningssíðunni má líka finna ráðleggingar um hvernig orða skuli boðskortin og hvað beri að hafa í huga varðandi myndatöku. Til dæmis hvað sé skemmtilegt að mynda í undirbúningsferlinu. Þarna má líka finna töflureikni-skjal (excel), þar sem fylla má inn í ólíka kostnaðarliði er varða brúðkaupið. Þannig má strax í upphafi gera raunhæfa kostnaðaráætlun og sjá í hva ð stefnir. Inni á undirbúningssíðunni má finna lista yfir kirkjur og fyrirtæki og einstaklinga sem bjóða upp á brúðarbíla. Þar er líka listi yfir tónlistarfólk sem býður verðandi brúðhjónum þjónustu sína. Ei nnig eru þarna ferðaskrifstofur sem bjóða upp á spennandi brúðkaupsferðir og greinasafn um allt milli himins og jarðar, sem lítur að undirbúningi brúðkaupsins.Á undirsíðunni Blóm og skraut er að finna lista yfir öll þau fyrirtæki sem bjóða upp á blóm og skreytingar fyrir þennan mikla merkisdag. Einnig má finna þar greinar og fróðleik um blómin og litina, brúðarvöndinn og hvað beri að hafa í huga varðandi skreytingar í sal. Á síðunni sem nefnist Veislan er svo auðvitað að finna allt um brúðkaupsveisluna sjálfa. Þar eru listar yfir sali og hótel, veitingaþjónustur, bakarí, fyrirtæki sem bjóða upp á veisluföng, hljóðkerfi og áhugaverða staði þar sem gista má á brúðkaupsnóttinni. Greinasafnið á síðu veislunnar geymir meðal annars ráðleggingar um magn fljótandi veiga og servíettubrot, svo eitthvað sé nefnt. Á brudkaup.is gefst brúðhjónum kostur á að spjalla við aðra sem staddir eru í sömu sporum í þessu spennandi ferli; undirbúningi fyrir brúðkaup. Verðandi brúðhjónum gefst þannig tækifæri til að skiptast á spurningum, góðum ráðum og skemmtilegum sögum. Einnig geta brúðhjón haldið úti sínum eigin persónulegu vefsíðum á síðunni Vefsíður brúðhjóna. Þar geta pörin haft allt um brúðkaupið sitt á einum stað og veitt vinum og vandamönnum aðgang að síðunni. En brudkaup.is er ekki aðeins fyrir brúðhjón. Þegar smellt er á flipann Brúðkaupsgestir birtist nýtt viðmót í bláum lit og er það sérstaklega ætlað öllum þeim sem eru á leið í brúðkaup; vinum, vandamönnum, foreldrum, svaramönnum, brúðarmeyjum og veislustjórum. Þar er líka að finna undirsíðuna Útlit og heilsa, því brúðkaupsgestum er líka annt um að líta vel út. Þar er að finna fyrirtæki sem sjá um hirðu líkama og útlits; hárgreiðslu- og snyrtistofur, líkamsræktarstöðvar og fataverslanir. Einnig má þar finna greinar er varða útlit og heilsu Eitt af því sem brúðkaupsgestir þurfa að huga að er gjöfin. Síðan sem nefnist Gjafavörur hefur að geyma lista yfir ótalmörg fyrirtæki sem bjóða upp á skemmtilegar brúðargjafir. Má þar nefna blómaverslanir, listgallerí, gjafavöruverslanir, antíkbúðir, gullsmiði, húsgagnaverslanir og verslanir sem bjóða upp á borðbúnað, heimilistæki, útivistarfatnað, lín og léreft og gjafakort. Undir Veisla og sprell má svo finna allskyns fróðleik og góð ráð. Til dæmis greinina Fullkominn gestur, sem fer ýtarlega í það hvernig beri að haga sér í hlutverki gestsins og ábendingar um myndatökur fyrir gestina. Þarna geta veislustjórar fundið upplýsingar um flestallt sem lítur að veislustjórninni; tékklista, ráðleggingar fyrir ræðuhöld og annað. Þarna eru líka hugmyndalistar yfir skemmtilega leiki fyrir brúðkaupsveislur. Þeir sem hyggjast gæsa eða steggja góða vinkonu eða vin geta líka flett upp ýmsum fróðleik, ráðum og hugmyndum á síðunni Veisla og sprell. Við vonum að brudkaup.is komi tilvonandi brúðhjónum, vinum þeirra og vandamönnum að góðum notum og að framundan sé fallegt sumar, sem gefi af sér mörg ástrík og góð hjónabönd. Með bestu kveðjum, fyrir hönd brudkaup.is Klara Helgadóttir Til baka |
|
|||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||