|
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
|
Brúðkaup.is óskar íslensku þjóðinni til hamingju með þann merka áfanga í mannréttindamálum sem vannst þegar lög um ein hjúskaparlög voru samþykkt á Alþingi þann 11. júní síðastliðinn. Frumvarpið var lagt fram af Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra, og snýst um að löggjöf um hjúskap karls og konu og lög um staðfesta samvist tveggja einstaklinga eru sameinuð í ein hjúskaparlög. Yfirgnæfandi meirihluti samþykkti frumvarpið og voru greidd atvæði fylgjandi frumvarpinu alls 49 talsins.Prestar ráða því hinsvegar sjálfir hvort þeir gefi saman samkynhneigð pör. Á prestastefnu sem haldin var í lok apríl var lögð fram tillaga um að lýsa stuðningi við frumvarpið. Ekki náðist þó að afgreiða hana heldur var hún sett í nefnd án sérstakrar niðurstöðu fundarmanna. Því er þó víðsfjarri að allir prestar séu á móti hjónaböndum samkynhneigðra og höfðu á níunda tug presta, djákna og guðfræðinga skrifað undir yfirlýsingu frumvarpinu til stuðnings sem birt var á vefsíðunni einhjuskaparlog.tumblr.com. ![]() Lögin munu taka gildi þann 27. júní en sá dagur er opinber baráttudagur samkynhneigðra. Þann dag verður haldin regnbogamessa í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þess má geta að Fríkirkjan er óháð þjóðkirkjunni og hefur gefið saman samkynhneigð pör um árabil. Ísland hefur nú stigið mikilvægt skref í mannréttindamálum með því að skilgreina hjónabandið ekki lengur sem samning karls og konu, heldur samkomulag tveggja einstaklinga sem byggir á ást og virðingu. Ákvörðun þessi setur öðrum þjóðum gott fordæmi, en eins og flestir vita er mannréttindum samkynhneigðra víða mjög ábótavant í heiminum. Til baka |
|
|||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||