Brúðkaup

Brúðkaup
Brúðkaup

  Útlit og heilsa  
 |    Undirbúningur  
 |    Blóm og skraut  
 |    Veislan  
 |    Brúðkaupsgestir  
 |    Spjall  
 |    Vefsíður brúðhjóna  


Skipulegðu brúðkaupið með aðstoð brudkaup.is
Fróðleikur um brúðkaupið og brúðkaupsundirbúninginn
Leitaðu á vefnum






Leita

Könnun



Hver er þinn brúðkaupsmánuður?

 Janúar
 Febrúar
 Mars
 Apríl
 Maí
 Júní
 Júlí
 Ágúst
 September
 Október
 Nóvember
 Desember

Kjósa



Brúðkaupsleikurinn 2010


  hendur.jpg Nú hafa vinningshafar verið dregnir út í brúðkaupsleik brudkaup.is og Létt Bylgjunnar. Þrjú heppinn pör voru dregin úr pottinum í beinni útsendingu dagana 14. til 16. júlsigga og gretar.jpgí.

Hestakonan Sigríður Pjetursdóttir og tónlistarmaðurinn Grétar Lárus Matthíasson eru búin að vera saman í rúm fjögur ár og eiga tvær dætur, 1 árs og 2ja og hálfs árs gamlar. Þau létu gefa sig saman þann 17. júlí síðastliðinn og unnu 50 þúsund króna gjafabréf í versluninni Dúka í Kringlunni. Það kom að góðum notum og hafa þau þegar farið í verslunina og valið sér kaffivél og sitthvað fleira. 

hildur og olafur.jpgHildur Björnsdóttir og Ólafur Örvar Ólafsson munu láta gefa sig saman þann 7. ágúst. Þau hafa nú verið saman í rúm 7 ár og eiga tvo syni, einn 3ja ára og einn 9 mánaða. Hildur varð mjög hissa þegar hún fékk símhringingu frá Siggu Lund á Létt Bylgjunni, því hvorki hún né Ólafur vissu að þau væru í þessum potti. Það verður því fróðlegt að vita hvort einhver gefur sig fram í veislunni, því þau unnu 50 flöskur af Torres léttvíni frá K.Karlssyni. Viðkomandi má allavega búast við því að það verði skálað fyrir honum, fyrir að hafa skráð þau Hildi og Ólaf til leiks.


 Þóra Elísabet Kjeld og Jón Þór Einarsson kynntust fyrir fimm árum síðan. Þá voru þau leidd saman af sameiginlegri vinkonu þeirra beggja. Hún vissi að þau væru fullkomin fyrir hvort annað og fékk Jón Þór til að færa Þóru  pakka. Í pakkanum reyndist vera bók  og stuttu síðar fékk Jón Þór einnig bók að launum frá Þóru. Í fraþora og jon þor.jpg mhaldi af þessu fóru Þóra og Jón Þór að bera saman bækur sínar. Foreldrar Þóru eru báðir látnir, en Jón Þór hélt á fund eldri systur Þóru og bað um hönd hennar áður en hann bar upp bónorðið. Það gerði hann á brúðkaupsdegi  foreldra hennar þann 10. nóvember árið  2007, niðri við sjóinn í Reykjavík, og kom Þóru gjörsamlega á óvart. Þau munu láta gefa sig saman þann 28. ágúst, og þá munu þau einnig láta skíra yngstu dótturina, en saman eiga þau fjögur börn.

Þóra og Jón Þór voru ekki búin að gera neinar ráðstafanir varðandi brúðkaupsnóttina, en þau hlutu í vinning gull pakka frá Hilton Reykjavík Nordica. Þar munu þau slaka á og láta dekra við sig eftir þennan stóra og hamingjuríka dag.

Við óskum vinningshöfunum hjartanlega til hamingju með verðlaunin, en fyrst og fremst óskum við þeim  til hamingju með hvort annað.

Ekki hika við að leyfa ástinni að fljóta og fara alla leið.


Til baka







Allt fyrir veislustjórann

Yfirsýn yfir útgjöldin



Brúðarvöndurinn ofl

Vertu brúðkaupsvinur á Facebook

Allt um veisluna


    Athugasemdir  Tenglar Auglýsendur Vefsíður brúðhjóna Skráning fyrirtækja Breyta vefsíðu