





|

|


Við munum stöðugt bæta við listann um áhugaverða tengla fyrir brúðkaup og öllu því sem að þeim lítur.
- www.theknot.com Mjög skemmtileg vefsíða sem tekur á hinum ýmsu málum varðandi undirbúning brúðkaups og brúðkaupsdagsins. Vefurinn er mjög stór og getur því verið nokkuð ruglingslegur fyrir þá sem ekki eru vanir að skoða á netinu.
- www.ultimatewedding.com Þessi síða er líka fín til að kíkja á og fá hugmyndir eða til að skoða myndir.
- www.weddingchannel.com Þetta er sama síða og wedding.com en þau tvö fyrirtæki leiddu saman hesta sína fyrir nokkru. Þetta er ein stærsta brúðkaupsvefsíða Bandaríkjanna og margt sniðugt hægt að finna ef vel er leitað. Það sama gildir hér og með The knot, mjög stór vefur og ótal krókaleiðir.
- www.davidsbridal.com Hér er hægt að skoða vörulista fyrir brúðarfatnað, bæði fyrir brúður og brúðguma. Að sjálfsögðu eru fleiri tegundir fatnaðar t.d. fyrir brúðarmeyjar og klassískur kvöldfatnaður.
- www.lilly.dk Hér er um að ræða danska vefsíðu sem selur m.a. brúðarfatnað, bæði fyrir brúður og brúðguma.
- www.theweddingshopper.com Bandarísk vefverslun en þar er hægt að finna allt milli himins og jarðar.
- www.pantilesbride.com Vefsíða sem inniheldur hönnun brúðarfatnaðs frá nokkrum hönnuðum.
- www.christianacouture.com Sýnir góðar myndir af brúðarkjólum breska hönnuðsins Christiana Couture.
- www.palomablanca.com Gaman að skoða brúðarfatnað.
- www.deluxeprint.com Mjög góð vefsíða til að skoða boðskort fyrir öll tækifæri.
- www.vildarkjor.is Fyrir þá sem vilja t.d. láta semja kvæði eða annan texta fyrir nýgift brúðhjón. Tilvalið fyrir öll tækifæri.
- www.bridesave.com Hér má finna ýmsan brúðarfatnað frá mörgum hönnuðum á misjöfnu verði.
- www.ebay.com Hér er hægt að versla allt milli himins og jarðar. Íslenskar konur hafa verslað brúðarkjóla frá þessari vefverslun og láta vel að.
- www.brudarkjolaleiga.is Þetta er stórglæsileg vefsíða Brúðarkjólaleigu Dóru. Hér gefur að líta ýmsan fatnað sem er til leigu og sölu og hæfa konunglegum tækifærum. Einnig fylgihlutir og fleira.
- www.brudhjon.is Þetta er vefsíða Brúðarkjólaleigu Katrínar. Hér er hægt að skoða brot af þeim brúðarkjólum sem eru til leigu.
- www.karmel.is Þetta er vefsíða Karmelsystranna í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Á vefnum er m.a. að finna upplýsingar um verslun þeirra í klaustrinu en þar selja þær hin ýmsu handunnin verk. Þar er t.d. hægt að kaupa skrautskrifaðar gestabækur, handunnin kerti og jafnvel gjafir fyrir brúðhjónin.
- www.brudurin.is Glænýr brúðkaupsvefur með mikið af skemmtilegum greinum og fróðleik. Guðbjörg Magnúsdóttir ráðleggur væntanlegum brúðhjónum um allt sem við kemur stóra deginum.
Ef þið hafið uppástungur um áhugaverða vefsíður vinsamlega sendið okkur þær á brudkaup@brudkaup.is
|

|















|