|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Kæri auglýsandi. Vefurinn er gagnvirkur þar sem auglýsendur geta sjálfir uppfært sína skráningu sem inniheldur upplýsingar og myndir um starfsemi sína. Á vefnum er að finna mikið magn upplýsinga um starfsemi og vörur fyrirtækja sem tengjast brúðkaupum. Aðsókn inn á vefinn hefur verið mjög mikil síðan hann fór í loftið þann 19. apríl árið 2002. Í dag eru hátt í 500 heimsóknir á dag og fer þeim sífellt aukandi. Því er ljóst að brudkaup.is er kjörin vettvangur fyrir fyrirtæki sem selja vörur og/eða þjónustu til brúðhjóna og gesta þeirra. Við einbeitum okkur að því að skrá aðeins fyrirtæki sem veita brúðhjónum faglega og trausta þjónustu. Í dag eru þegar um 600 fyrirtæki skráð með grunnskráningu á brudkaup.is. Þessi skráning er hinsvegar takmörkuð við nafn, og veffang fyrirtækis. Þeir sem kaupa skráningu hafa möguleika á að setja inn sitt eigið lógó, texta um sínar vörur og/eða þjónustu og myndir og þar með gert sína skráningu sýnilegri og áhrifameiri. Við höfum mikin áhuga á að þitt fyrirtæki sé skráð hjá okkur og kvetjum við ykkur til að gera svo. Til að gera svo farið þið inn á hnapp neðst á síðunni, www.brudkaup.is, sem er merktur „Skráning fyrirtækja". Þar velur þú „Nýskrá fyrirtæki" og fylgir leiðbeiningum sem þar eru. Einnig getur þú prentað út nákvæmar leiðbeiningar með því að smella hér: LEIÐBEININGAR. Ársgjald á auglýsingaskráningu er aðeins 14.400 krónur, án VSK. Einnig er hægt að greiða fyrir skemmri tíma (sjá verðskrá). Verðskrá
TILBOÐ! HEILSÁRS AUGLÝSINGASKRÁNING Í JÚLÍ Á AÐEINS 19.900 kr.
Á hverju ári gifta sig að jafnaði 1.470 brúðhjón hér á landi. Brudkaup.is hefur þá sérstöðu að flestir þeir sem ætla að leita eftir upplýsingum og fróðleik um brúðkaup á netinu byrja á að slá inn lénið www.brudkaup.is Að auki vísa lénin www.gifting.is og www.wedding.is inn á vefsíðuna. Við vonum svo sannarlega að þú sjáir þér hag í að skrá fyrirtæki þitt (þjónustu) á brudkaup.is og/eða auglýsa þína vöru og þjónustu með auglýsingaborðum á síðunni. Ef þú þarft einhverja aðstoð við skráninguna og/eða nánari upplýsingar þá hikaðu ekki við að hafa samband. Leiðbeiningar um skráningu má finna undir "Leiðbeiningar" hér að ofan. Auk þess bjóðum við upp á aðstoð við myndatöku og textagerð fyrir þá sem þess óska. Kær kveðja, Starfsfólk brudkaup.is brudkaup@brudkaup.is |
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||